/

Deildu:

Auglýsing

Golfsamband Íslands vill vekja athygli á því að hægt er að sækja um sérstakan íþrótta- og tómstundastyrk fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum.

Markmiðið er að jafna tækifæri til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Hægt er að sækja um styrki til og með 1. mars 2021.

Styrkirnir eru óháðir hefðbundnum íþrótta- og tómstundastyrkjum sveitarfélaga. Styrkirnir eru veittir vegna barna sem fædd eru á árunum 2005-2014 og búa á heimili þar sem heildartekjur heimilisins voru lægri en 740.000 kr. að meðaltali á mánuði á tímabilinu mars-júlí 2020.

Styrkurinn er 45.000 kr á hvert barn og er talið að um 13.000 börn á landinu öllu eigi rétt á styrknum.

Nánar á vef ÍSÍ og myndböndunum hér fyrir neðan:

Afreiðsla styrkumsókna er á höndum sveitarfélaga landsins.

Styrkina er m.a. hægt að nýta til niðurgreiðslu á þátttökugjöldum vegna íþróttaiðkunar.

Sveitarfélög setja reglur um úthlutun stykjanna og getur fyrirkomulag verið breytilegt.

Nánar á vef ÍSÍ og í myndböndunum hér fyrir neðan.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ