Auglýsing

Opna breska áhugamannamótið í kvennaflokki 2021 fer fram dagana 7.-12. júní en mótið fer nú fram í 118. sinn og verður leikið á Kilmarnock, Barassie, í Skotlandi.

Mótið er hluti af keppnisdagskrá R&A í Skotlandi og sigurvegarinn fær tækifæri til þess að leika á risamótum á atvinnumótaröðum í kvennaflokki.

Þrír íslenskir kylfingar eru á meðal keppenda, Ragnhildur Kristinsdóttir, GR – Hulda Clara Gestsdóttir, GKG og Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR. Opna breska áhugamannamótið er eins og áður segir eitt sterkasta áhugamannamótið í kvennaflokki sem fram fer árlega en keppendur eru alls 144.

Keppnisfyrirkomulagið er með þeim hætti að leiknar eru 36 holur með höggleiksfyrirkomulagi – 64 efstu kylfingarnir komast áfram í næstu umferð þar sem að holukeppni tekur við. Í holukeppninni eru leiknar 18 holur í hverri umferð en úrslitaleikurinn er 36 holur.

Hulda Clara er sem stendur í 7. sæti í höggleikskeppninni, Ragnhildur Kristinsdóttir er í 20. sæti og Jóhanna Lea er í 73. sæti.

Jóhanna Lea lék fyrsta hringinn á 81 höggi, Ragnhildur Kristinsdóttir lék á 74 höggum eða +1 og Hulda Clara lék á 1 höggi undir pari eða 72 höggum.

Skor keppenda er uppfært hér:

Sigurvegarinn fær keppnisrétt á fjórum risamótum hjá atvinnukylfingum, AIG mótinu, Opna bandaríska meistaramótinu, Evian meistaramótinu og Augusta National meistaramótinu.

Nánar um mótið hér:

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ