Íslandsmótið í holukeppni 2026 í kvennaflokki fer fram á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi dagana 19.-21. júní.
Nú er ljóst hvaða kylfingar tryggðu sér sæti í 16 manna útsláttarkeppninni. Eftir 36 holu höggleik var það Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili og Eva Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar sem léku best allra. Guðrún Brá lék á pari vallarins og hafnaði í efsta sæti, en Eva fylgdi fast á eftir og endaði á einu höggi yfir pari.
Spenna skapaðist um síðasta sætið í 16 manna úrslitum þar sem tvær voru jafnar í 16. sæti á 18 höggum yfir pari. Þær Þóra Sigríður Sveinsdóttir og Ásdís Valtýsdóttir úr GR þurftu að leika bráðabana um eitt laust sæti í útsláttarkeppninni. Það var Þóra Sigríður sem hafði betur og tryggði sér sæti í 16 manna úrslitum þar sem hún mætir Guðrúnu Brá í baráttunni um sæti í átta manna úrslitum.
Urriðavöllur er í góðu ástandi og veðuraðstæður með besta móti í allan dag. Á morgun hefst holukeppnin sjálf þegar 16 efstu kylfingarnir hefja leik í útsláttarkeppninni og má búast við spennandi viðureignum og harðri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn.
Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit.
Íslandsmeistarar í holukeppni í kvennaflokki frá upphafi:
Alls hafa 20 leikmenn sigrað í kvennaflokki á Íslandsmótinu í holukeppni frá árinu 1988 þegar mótið fór fyrst fram.
Ragnhildur Sigurðardóttir hefur sigrað oftast eða 6 sinnum alls (1990, 1993, 1997, 2000, 2001 og 2005), Ólöf María Jónsdóttirer með 5 titla alls (1995, 1996, 1998, 1999 og 2004), Karen Sævarsdóttir er með 4 titla alls. (1988,1991, 1992 og 1994). Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur sigrað þrívegis (2011, 2013 og 2020). Fjórir leikmenn hafa sigrað tvívegis: Þórdís Geirsdóttir (1989 og 2007), Signý Arnórsdóttir (2009 og 2012), Guðrún Brá Björgvinsdóttir (2017 og 2021) og Saga Traustadóttir (2019 og 2022). Saga er sú eina sem hefur skilað þessum titli til tveggja golfklúbba, en hún var Í GR árið 2019 en hún hefur verið í GKG undanfarin ár.
| Ár | Nafn | Klúbbur | Fjöldi titla |
| 1988 | Karen Sævarsdóttir | GS | 1 |
| 1989 | Þórdís Geirsdóttir | GK | 1 |
| 1990 | Ragnhildur Sigurðardóttir | GR | 1 |
| 1991 | Karen Sævarsdóttir | GS | 2 |
| 1992 | Karen Sævarsdóttir | GS | 3 |
| 1993 | Ragnhildur Sigurðardóttir | GR | 2 |
| 1994 | Karen Sævarsdóttir | GS | 4 |
| 1995 | Ólöf María Jónsdóttir | GK | 1 |
| 1996 | Ólöf María Jónsdóttir | GK | 2 |
| 1997 | Ragnhildur Sigurðardóttir | GR | 3 |
| 1998 | Ólöf María Jónsdóttir | GK | 3 |
| 1999 | Ólöf María Jónsdóttir | GK | 4 |
| 2000 | Ragnhildur Sigurðardóttir | GR | 4 |
| 2001 | Ragnhildur Sigurðardóttir | GR | 5 |
| 2002 | Herborg Arnarsdóttir | GR | 1 |
| 2003 | Helga Rut Svanbergsdóttir | GM (GKj) | 1 |
| 2004 | Ólöf María Jónsdóttir | GK | 5 |
| 2005 | Ragnhildur Sigurðardóttir | GR | 5 |
| 2006 | Anna Lísa Jóhannsdóttir | GR | 1 |
| 2007 | Þórdís Geirsdóttir | GK | 1 |
| 2008 | Ásta Birna Magnúsdóttir | GK | 1 |
| 2009 | Signý Arnórsdóttir | GK | 1 |
| 2010 | Valdís Þóra Jónsdóttir | GL | 1 |
| 2011 | Ólafía Þórunn Kristinsdóttir | GR | 1 |
| 2012 | Signý Arnórsdóttir | GK | 2 |
| 2013 | Ólafía Þórunn Kristinsdóttir | GR | 2 |
| 2014 | Tinna Jóhannsdóttir | GK | 1 |
| 2015 | Heiða Guðnadóttir | GM | 2 |
| 2016 | Berglind Björnsdóttir | GR | 1 |
| 2017 | Guðrún Brá Björgvinsdóttir | GK | 1 |
| 2018 | Ragnhildur Kristinsdóttir | GR | 1 |
| 2019 | Saga Traustadóttir | GR | 1 |
| 2020 | ÓIafía Þórunn Kristinsdóttir | GR | 3 |
| 2021 | Guðrún Brá Björgvinsdóttir | GK | 2 |
| 2022 | Saga Traustadóttir | GKG | 2 |
| 2023 | Perla Sól Sigurbrandsdóttir | GR | 1 |
| 2024 | Anna Júlía Ólafsdóttir | GKG | 1 |
| 2025 | Heiðrún Anna Hlynsdóttir | GOS | 1 |



