Hákon Örn Magnússon, Aron Snær Júlíusson og Aron Emil Gunnarsson. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Íslandsmótið í holukeppni í karlaflokki 2024 fer fram á Garðavelli hjá Golfklúbbnum Leyni dagana 22.-24. júní. 

Opið er fyrir skráningu en skráningu lýkur í kvöld, fimmtudaginn 6. júní kl. 23:59.

Í fyrri hluta Íslandsmótsins er leikinn 36 holu höggleikur án forgjafar, þar sem sextán efstu keppendurnir komast áfram í útsláttarkeppni.

Að höggleik loknum eru leiknar fjórar umferðir í holukeppni, nánar hér fyrir neðan.

Íslandsmótið í holukeppni kvenna 2024 fer fram á Hlíðavelli dagana 14.-16. júní.
Sjá hér: 

Leikið er samkvæmt reglugerð um Íslandsmót í holukeppni í flokki karla og kvenna. Í kvennaflokki er hámarksforgjöf 8,5 en hámarksfjöldi keppenda er 84. Hámarksforgjöf miðast við forgjöf þátttakanda kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur fimmtudaginn 6. júní kl. 23:59.

Þátttökurétt hafa (a) íslenskir ríkisborgarar og (b) erlendir kylfingar eftir a.m.k. þriggja ára samfellda búsetu hérlendis. Hámarksforgjöf miðast við forgjöf þátttakanda kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur. Þátttakendur skulu vera félagar í golfklúbbi innan vébanda GSÍ.

Þátttökurétt hafa:

1. Ríkjandi Íslandsmeistari í holukeppni.

2. Leikmenn með stig á heimslista atvinnukylfinga (www.owgr.com) kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur. Leikmenn í sætum 1 – 2000 á heimslista áhugakylfinga (www.wagr.com) kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur.

3. Stigahæstu kylfingar á stigamótaröðinni, þar til 32 þátttakendum er náð. Stig reiknast þannig að við stig ársins bætast stig frá síðasta ári, frá og með fyrsta stigamóti eftir Íslandsmótið í holukeppni, þ.e. síðasta Íslandsmót í holukeppni telur ekki í stigafjöldanum. Hér má sjá stigalistann.

4. Forgjafarlægstu kylfingarnir sem eru skráðir til leiks eftir að skráningarfresti lýkur, þar til hámarksfjölda er náð.

Séu kylfingar jafnir í sæti á stigamótaröðinni, sbr. lið 4, telst sá ofar sem ofar varð í Íslandsmótinu í golfi. Séu kylfingar enn jafnir, telst sá ofar sem náð hefur efra sæti á öðrum stigamótum. Séu kylfingar þá enn jafnir ræður hlutkesti. Séu kylfingar með jafnháa forgjöf sbr. 5 lið hér að ofan ræður hlutkesti. Miðað er við forgjöf þátttakenda kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur.

Í fyrri hluta Íslandsmótsins er leikinn 36 holu höggleikur án forgjafar, þar sem sextán efstu keppendurnir komast áfram í útsláttarkeppni.

Að höggleik loknum eru leiknar fjórar umferðir í holukeppni:

  • 1. umferð: 16 manna holukeppni.
  • 2. umferð: 8 manna holukeppni þeirra sem áfram komast.
  • 3. umferð: Undanúrslit, 4 manna holukeppni þeirra sem áfram komast.
  • 4. umferð: Úrslit, leikur um 3. sæti og úrslitaleikur.

Undankeppni

Mótsstjórn er heimilt að halda undankeppni um fjögur síðustu sætin ef umframskráning verður sem nemur a.m.k. sex sætum. Þátttaka í slíkri undankeppni skal bundin við þá leikmenn sem standast forgjafarmörk og hafa skráð sig til keppni innan tilskilins skráningarfrests. Undankeppnin er 18 holu höggleikur án forgjafar. Mótsstjórn ákveður leikstað og -tíma og setur nánari reglur, t.d. um lágmarksfjölda þátttakenda. Ákvörðun um hvort slík undankeppni verði haldin (ef næg umframskráning verður) skal verða tilkynnt þegar skráningarfresti lýkur.

Verðlaun:

Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti.

1.sæti: 140.000 kr.

2. sæti: 100.000 kr.

3. sæti: 70.000 kr.

Mótsgjald og æfingahringir

Mótsgjald er 11.000 kr. og skal greitt við skráningu. Þátttökugjald fæst einungis endurgreitt séu forföll boðuð eigi síðar en kl. 18:00, þremur dögum fyrir fyrsta keppnisdag.

Einn æfingahringur er innifalinn í mótsgjaldi en skilyrði er að vera búin að greiða mótsgjald fyrir æfingahring. Formlegir æfingadagar eru 20. og 21. júní en rástímar fyrir æfingahringi eru kl. 8:00-15:00. Kylfingar þurfa að hafa samband við klúbbinn tímanlega til að bóka rástíma: leynir@leynir.is eða í 431-2711.

Þeir kylfingar sem komast ekki inn í mótið fá mótsgjald endurgreitt.

*Birt með fyrirvara um breytingar*

    Aron Snær Júlíusson, Íslandsmeistari í holukeppni karla 2023. Mynd/seth@golf.is

    Alls hafa 25 leikmenn fagnað þessum titli í karlaflokki frá árinu 1988 þegar Íslandsmótið í holukeppni fór fyrst fram.

    Birgir Leifur Hafþórsson er sigursælastur með alls fjóra titla 1994, 1996, 2004 og 2010. Björgvin Sigurbergsson er með þrjá titla, 1992, 1998 og 200.

    Sex leikmenn hafa sigrað tvívegis, Úlfar Jónsson (1988 og 1993), Haraldur Heimisson (2001 og 2003), Ottó Sigurðsson (2005 og 2007), Kristján Þór Einarsson (2009 og 2014), Axel Bóasson (2015 og 2020) og Rúnar Arnórsson (2019 og 2020). Rúnar er sá eini sem hefur náð að verja titilinn í karlaflokki í þau 36 skipti sem mótið hefur farið fram.

    Ár Nafn og klúbbur Fjöldi titla
    1988 Úlfar Jónsson, GK 1
    1989 Sigurður Pétursson, GR 1
    1990 Sigurjón Arnarsson, GR 1
    1991 Jón Karlsson, GR 1
    1992 Björgvin Sigurbergsson, GK 1
    1993 Úlfar Jónsson, GK 2
    1994 Birgir Leifur Hafþórsson, GL 1
    1995 Örn Arnarson, GA 1
    1996 Birgir Leifur Hafþórsson, GL 2
    1997 Þorsteinn Hallgrímsson, GV 1
    1998 Björgvin Sigurbergsson, GK 2
    1999 Helgi Þórisson, GS 1
    2000 Björgvin Sigurbergsson, GK 3
    2001 Haraldur Heimisson, GR 1
    2002 Guðmundur I. Einarsson, GR 1
    2003 Haraldur Heimisson, GR 2
    2004 Birgir Leifur Hafþórsson, GKG 3
    2005 Ottó Sigurðsson, GKG 1
    2006 Örn Ævar Hjartarson, GS 1
    2007 Ottó Sigurðsson, GKG 2
    2008 Hlynur Geir Hjartarson, GK 1
    2009 Kristján Þór Einarsson, GM 1
    2010 Birgir Leifur Hafþórsson, GKG 2
    2011 Arnór Ingi Finnbjörnsson, GR 1
    2012 Haraldur Franklín Magnús, GR 1
    2013 Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR 1
    2014 Kristján Þór Einarsson, GM 2
    2015 Axel Bóasson, GK 1
    2016 Gísli Sveinbergsson, GK 1
    2017 Egill Ragnar Gunnarsson, GKG 1
    2018 Rúnar Arnórsson, GK 1
    2019 Rúnar Arnórsson, GK 2
    2020 Axel Bóasson, GK 2
    2021 Sverrir Haraldsson, GM 1
    2022 Sigurður Bjarki Blumenstein, GR 1
    2023 Aron Snær Júlíusson, GKG 1

    Deildu:

    Auglýsing
    Auglýsing

    Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

    Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ