Íslandsmótið í holukeppni 2026 fer fram dagana 19.-21. júní. Keppt verður í karla- og kvennaflokki, en mótið fer fram á tveimur stöðum í ár. Karlamótið verður leikið á Hólmsvelli hjá Golfklúbbi Suðurnesja og konurnar leika á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi.
Skráning í mótið er hafin og lýkur föstudaginn 12. júní kl. 23:59.
Íslandsmótið í holukeppni er eitt skemmtilegasta mót ársins, þar sem fyrirkomulagið býður upp á mikla spennu og beina keppni milli kylfinga. Fyrsta keppnisdaginn er leikinn 36 holu höggleikur þar sem keppt er um sæti í útsláttarkeppninni. Að loknum höggleiknum komast 16 efstu kylfingarnir í hvorum flokki áfram í holukeppnina.
Á laugardeginum eru leikin 16 manna úrslit og 8 manna úrslit. Á sunnudeginum fara síðan fram undanúrslit og úrslitaleikir, þar sem Íslandsmeistarar ársins í holukeppni verða krýndir.
Á síðasta ári fóru mótin fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Þar fögnuðu Böðvar Bragi Pálsson, GR, og Heiðrún Anna Hlynsdóttir, GOS, sigri.


