GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Gunnlaugur hefur brotið blað í íslenskri golfsögu
Auglýsing

Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, spilaði sig í kvöld inn á U.S. Open risamótið eftir bráðabana í lokaúrtökumóti í Ohio! Landsliðskylfingurinn verður fyrsti íslenski karlmaðurinn sem leikur í þessu stóra móti.

Gunnlaugur lék frábært golf í mótinu. 

Leiknar voru 36 holur á The Lakes Golf & Country Club vellinum í Westerville um fjögur laus sæti í risamótinu. Gunnlaugur hlaut þátttökurétt í mótinu vegna sterkrar stöðu sinnar á heimslista áhugakylfinga, en hann er sautjándi á listanum. Dagbjartur Sigurbrandsson var einnig á meðal keppenda mótsins, en hann öðlaðist þátttökurétt eftir frábæra spilamennsku í undankeppni í maí.

Gunnlaugur lék fyrri hringinn á 67 höggum, fimm undir pari og var jafn í fjórða sæti að honum loknum. Ljóst var að hann væri í góðum málum fyrir seinni umferðina og til mikils að spila.

Gunnlaugur fór vel af stað á seinni hringnum og lék fyrri níu holurnar á þremur höggum undir pari. Tvöfaldur skolli á tíundu holunni reyndist honum dýr, en hann svaraði vel fyrir sig og fékk þrjá fugla á næstu fjórum holunum. Fjögur pör á síðustu fjórum holunum skiluðu honum hring upp á 68 högg.

Gunnlaugur lék hringina tvo því á níu höggum undir pari og endaði jafn í öðru sæti ásamt þremur öðrum kylfingum. Þar sem einungis fjórir efstu fóru áfram þurfti að leika fjögurra manna bráðabana um þrjú laus sæti í mótinu. 

Strax á fyrstu holu bráðabanans sló áhugakylfingurinn Sam Udovich í vatn af teig og fékk tvöfaldan skolla. PGA sigurvegarinn J.B. Holmes var einnig í bráðabananum og kom sér í klandur úr brautarglompu, en bjargaði parinu meistaralega. Gunnlaugur lék holuna af miklu öryggi og tryggði sér sæti í risamótinu. 

Þvílíkur árangur hjá okkar manni sem verður á meðal keppenda á Shinnecock Hills vellinum í næstu viku. Sjáumst þar!

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ