Íslandsmótið í golfi 2026 fer fram á Korpúlfsstaðavelli Golfklúbbs Reykjavíkur dagana 6.-9. ágúst.
Alls eru 132 kylfingar skráðir til leiks, 92 í karlaflokki og 40 í kvennaflokki. Á meðal keppenda eru fremstu kylfingar landsins, atvinnukylfingar og tíu fyrrverandi Íslandsmeistarar í golfi.
Smelltu hér til að skoða rástíma og stöðu mótsins:
Leikinn verður 72 holu höggleikur á fjórum keppnisdögum. Eftir fyrstu 36 holurnar verður keppendahópurinn skorinn niður fyrir tvo síðustu keppnisdagana.
Sýnt verður beint frá síðustu þremur keppnisdögum mótsins á RÚV. Aldrei hefur verið sýnt jafn lengi frá Íslandsmótinu og verður mikið lagt í útsendinguna.
Útsendingartímar:
- Föstudagur 7. ágúst kl. 15:30-18:30
- Laugardagur 8. ágúst kl. 15:00-17:45
- Sunnudagur 9. ágúst frá kl. 14:30 til mótsloka
Þetta verður í 29. sinn sem sýnt er beint frá Íslandsmótinu í golfi í sjónvarpi, en fyrsta beina útsendingin var frá Hólmsvelli í Leiru árið 1998.
Við hvetjum alla til að mæta á Korpúlfsstaðavöll og fylgjast með okkar fremstu kylfingum keppa um Íslandsmeistaratitlana. Aðgangur á mótið er ókeypis.
Á yfirlitsmynd mótsins má sjá staðsetningu bílastæða, salerna og veitingatjalds auk allra hola Korpúlfsstaðavallar.





