Íslandsmótið í holukeppni á Íslandsbankamótaröð barna – og unglinga hófst í morgun á Þoláksvelli hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar. Alls eru 125 keppendur skráðir til leiks og er keppt að venju i þremur aldursflokkum hjá báðum kynjum, 17-18 ára, 15-16 ára og 14 ára og yngri.
Keppt er í höggleik í dag, föstudag, og komast 16 efstu kylfingarnir áfram í sjálfa holukeppnina í þeim flokkum. Holukeppnin hefst á laugardag og fara tvær umferðir fram á laugardag og tvær á sunnudag. Úrslitin ráðast síðdegis á sunnudaginn.
![- Golfsamband Íslands Íslandsbankamótaröðin](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/11884603_10205925231908186_691905764020542374_o-1024x682.jpg)