Auglýsing

Íslandsmót unglinga í höggleik í flokki 15-21 árs fór fram á Leirdalsvelli hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar dagana 12.-14. ágúst.

Berglind Erla Baldursdóttir, GM, sigraði í flokki 17-18 ára stúlkna. Hún lék hringina þrjá á 227 höggum eða 14 höggum yfir pari vallar samtals. Sara Kristinsdóttir, GM, varð önnur á 232 höggum og Nína Margrét Valtýsdóttir, GR, varð þriðja á 234 höggum.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit.

Á þessum keppnisvelli léku þrír aldursflokkar, 15-16 ára stúlkur, drengir, 17-18 ára stúlkur, drengir og 19-21 árs stúlknur og drengir. Allir flokkar léku 54 holu höggleik án forgjafar.

Alls tóku 111 keppendur þátt og komu þeir frá 12 mismunandi klúbbum. Flestir voru frá GR eða 24, og GKG var með 23 keppendur. GM var með 20 og flesta keppendur í stúlknaflokkunum eða 10 alls.

Golfklúbbur Stúlkur PiltarFjöldi
GA – Golfklúbbur Akureyrar189
GB – Golfklúbbur Borgarness011
GKG- Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar71623
GM – Golfklúbbur Mosfellsbæjar101020
GR – Golfklúbbur Reykjavíkur 61824
GOS – Golfklúbbur Selfoss 167
GSS – Golfklúbbur Skagafjarðar 101
GS – Golfklúbbur Suðurnesja 123
GV – Golfklúbbur Vestmannaeyja022
GK – Golfklúbburinn Keilir 088
GL – Golfklúbburinn Leynir 044
NK – Nesklúbburinn 088

Keppt er í eftirtöldum flokkum:

Stúlknaflokkur 15-16 ára, hámarksforgjöf 17,0
Stúlknaflokkur 17-18 ára, hámarksforgjöf 17,0
Stúlknaflokkur 19-21 árs, hámarksforgjöf 14,0
Piltaflokkur 15-16 ára, hámarksforgjöf 13,0
Piltaflokkur 17-18 ára, hámarksforgjöf 9,0
Piltaflokkur 19-21 árs, hámarksforgjöf 6,0

Verðlaun

Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í öllum flokkum. Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti þá verður leikinn bráðabani en að öðru gilda móta- og keppendareglur GSÍ. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast stig og verðlaun jafnt á milli þeirra keppenda.

Verðlaunaafhending verður haldin strax að lokinni keppni í hverjum aldursflokki fyrir sig.

Annað

Leikmenn skulu skrá rafrænt skor.

Dómari: Þorgrímur „Toggi“ Björnsson

Mótsstjórn: Úlfar Jónsson, Stefanía Kristín Valgeirsdóttir, Brynjar Geirsson, Kristín María Þorsteinsdóttir, Ólafur Björn Loftsson.

Birt með fyrirvara um breytingar.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ