Auglýsing

Íslandsmót unglinga í höggleik 14 ára og yngri fer fram á Setbergsvelli dagna 11. 13. ágúst 2022 hjá Golfklúbbnum Setbergi.

Keppt er í tveimur aldursflokkum;
flokki 12 ára og yngri (stúlkur-drengir),
flokki 13-14 ára (stúlkur-drengir).

Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á www.golf.is fyrir kl. 23:59 á mánudeginum (8. ágúst) fyrir mótið. Mótsgjald er 4.500 kr.

Engar undantekningar á skráningu í mótið verða leyfðar eftir að skráningu lýkur, þó svo laus sæti séu í mótið. Allar breytingar á skráningu í mótið ber að senda tímanlega með tölvupósti á motanefnd@golf.is. Athugið að kylfingur verður ekki afskráður úr mótinu eftir að rástímar hafa verið birtir.

Opnað hefur verið fyrir skráningu – smelltu hér til að skrá þig.

Þátttökugjöld skulu greidd við skráningu. Þátttökurétt hafa (a) íslenskir ríkisborgarar og (b) erlendir kylfingar eftir a.m.k. þriggja ára samfellda búsetu hérlendis. Þátttakendur skulu vera félagar í golfklúbbi innan vébanda GSÍ.

Keppt skal í eftirtöldum flokkum:

Stúlknaflokkur 12 ára og yngri, hámarksforgjöf 40,0 – 27 holu höggleikur án forgjafar

Stúlknaflokkur 13-14 ára, hámarksforgjöf 32,0 – 54 holu höggleikur án forgjafar

Piltaflokkur 12 ára og yngri, hámarksforgjöf 40,0 – 27 holu höggleikur án forgjafar

Piltaflokkur 13-14 ára, hámarksforgjöf 32,0 – 54 holu höggleikur án forgjafar

Aldur miðast við almanaksár.

Þátttökurétt í hverjum flokki hafa, í þessari röð:

  1. Efstu leikmenn á unglingastigalista GSÍ á yfirstandandi ári í viðkomandi flokki, þegar skráningarfresti lýkur (á ekki við í flokkum 12 ára og yngri). Mótsstjórn ákveður fjölda leikmanna. Ef tveir eða fleiri leikmenn eru jafnir í síðasta sætinu skulu þeir báðir/allir fá þátttökurétt.
  2. Sigurvegarar á áskorendamótum á yfirstandandi ári í flokkum 10 ára og yngri, 12 ára og yngri og 14 ára og yngri.
  3. Aðrir leikmenn með lægstu forgjöf kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur. Standi val á milli keppenda með sömu forgjöf skal hlutkesti ráða.

Hámarksfjöldi leikmanna er 72, að hámarki 18 í hverjum flokki.

Ef ekki er full skráning í einhverjum flokkum skulu þeir leikmenn sem fjærst eru forgjafarmörkum í sínum flokki (þar sem er umframskráning) fá þátttökurétt. Miðað er við forgjöf leikmanna kl. 8:00

morguninn eftir að skráningarfresti lýkur. Standi val á milli leikmanna með sömu forgjöf skal hlutkesti ráða.

Forfallist kylfingur eftir að rástímar 1. umferðar hafa verið gefnir út skal sá kylfingur á biðlista sem er með lægstu forgjöf í viðkomandi flokki fá þátttökurétt í ráshópi þess sem forfallaðist.

Rástímar

Rástímar verða birtir í GolfBox fyrir kl.17:00 á miðvikudeginum fyrir mót. Á fyrsta keppnisdegi er keppendum raðað af handahófi á rástíma en annan og þriðja dag verður raðað út eftir skori.

Skráning

Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á www.golf.is fyrir kl. 23:59 á mánudeginum (8. ágúst) fyrir mótið. Mótsgjald er 4.500 kr.

Engar undantekningar á skráningu í mótið verða leyfðar eftir að skráningu lýkur, þó svo laus sæti séu í mótið. Allar breytingar á skráningu í mótið ber að senda tímanlega með tölvupósti á motanefnd@golf.is. Athugið að kylfingur verður ekki afskráður úr mótinu eftir að rástímar hafa verið birtir.

Æfingahringur

Einn æfingahringur án endurgjalds er heimilaður. Keppnisvöllurinn verður opinn til æfinga fyrir skráða keppendur í síðasta lagi einum degi fyrir mót. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn til að panta rástíma. Athugið að greiða verður mótsgjaldið áður en æfingahringur er leikinn. Að auki eru æfingaboltar fyrir hring á keppnisdögum innifaldir í þátttökugjaldi. Athugið almennar reglur um æfingahring.

Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn tímanlega til að bóka rástíma í æfingahringi á gse@gse.is en tímasetningar fyrir æfingahringi eru þriðjudag (10. ágúst) og miðvikudag (11. ágúst) kl. 8:00-14:00.

Þeir sem ætla að leika 18 holur verða að skrá rástíma fyrir klukkan 14:00 fyrir seinni níu holurnar.

Verðlaun

Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í öllum flokkum. Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti þá verður leikinn bráðabani en að öðru gilda móta- og keppendareglur GSÍ. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast stig og verðlaun jafnt á milli þeirra keppenda.

Verðlaunaafhending verður haldin strax að lokinni keppni í hverjum aldursflokki fyrir sig.

Annað

Leikmenn skulu skrá rafrænt skor fari ræsir fram á það.

Dómari: Karl Johan Brune og Sigrún Eir Héðinsdóttir.

Mótsstjórn: Högni Friðþjófsson, Pétur Einarsson, Brynjar Geirsson, Kristín María Þorsteinsdóttir,

Sóley Bærings.

Birt með fyrirvara um breytingar.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ