GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Group of young athletes outdoors, wearing gray sweatshirts and medals, holding trophies in a grassy field with sponsor banners behind them.
Íslandsmeistarar
Auglýsing

Íslandsmót golfklúbba í aldursflokknum 14 ára og yngri fór fram á Selsvelli á Flúðum dagana 24.-26. júní. Keppt var í stúlkna- og drengjaflokki og stóðu sveitir frá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar uppi sem sigurvegarar í báðum flokkum.

Drengir 14 ára og yngri:

Alls mættu sautján lið til leiks.

Fyrsti hringur mótsins var 18 holu höggleikur þar sem fjórir kylfingar léku fyrir hverja sveit, en einungis bestu þrjú skorin töldu. Úrslit hans voru notuð til að raða sveitunum niður í riðla. Sveit GM-A sigraði höggleikinn á 214 höggum, GR-A var í öðru sæti á 219 höggum og sveit GKG-B endaði í þriðja sæti á 227 höggum.

Í úrslitaleiknum mættust sveitir GKG-B og GM-A. Báðar sigruðu þær riðla sína, GKG með fullt hús en GM með 2.5 stig.

Sveit GKG-B vann leikinn 2-1, en síðasti leikurinn fór alla leið á átjándu holuna. Sveit GM endaði því í öðru sæti og GA sótti bronsið eftir sigur á GR.

Í sveit GKG voru:

  • Eiríkur Bogi Karlsson
  • Jón Reykdal Snorrason
  • Leon Mikael
  • Arnór Darri
Group of five young golfers posing with medals and trophy on a grassy field, with tall sponsor banners in the background under a cloudy sky.
Sigurvegarar drengja

Stúlkur 14 ára og yngri:

Alls mættu fjögur lið til leiks.

  • Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
  • Golfklúbburinn Keilir
  • Nesklúbburinn
  • Golfklúbburinn Oddur

Öll liðin léku innbyrðis og fór sveit GKG ósigruð í gegnum mótið. Þær unnu alla leiki sína 2-1 og mættu svo liði Nesklúbbsins í lokaleik, sem GKG sigraði 2.5-0.5

Sveit Nesklúbbsins endaði í öðru sæti með tvo vinninga og Golfklúbburinn Oddur í því þriðja með einn vinning. Golfklúbburinn Keilir endaði í fjórða sætinu.

Í sveit GKG voru:

  • Hrafnhildur Sig
  • Edda María
  • Arna Dís
  • Embla Dröfn
  • Elín Rós
  • Kristín Björg
Girls' sports team posing outdoors with medals and a trophy, blue sky and sponsor flags in the background.
Sigurvegarar stúlkna

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ