Íslenski atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús, Golfklúbbi Reykjavíkur, hefur spilað sig inn í lokaúrtökumót The Open sem fer fram þriðjudaginn 30. júní. Haraldur var á meðal keppenda í undankeppni á Enville golfvellinum í Bretlandi á mánudaginn.
Til leiks mættu 133 kylfingar sem léku um átta laus sæti í lokaúrtökumótinu. Haraldur lék frábært golf, kom í hús á sjö höggum undir pari og endaði jafn í efsta sæti mótsins. Hann opnaði hringinn á erni og var kominn sex högg undir par eftir einungis sjö holur. Frábær árangur hjá okkar manni.
Haraldur leikur í lokaúrtökumótinu á Dundonald Links vellinum í Skotlandi, en fjögur lokaúrtökumót fara fram á sama tíma á þriðjudaginn. Nick Carlson, kylfingur GM, verður einnig á meðal keppenda á Dundonald Links, en það verða kylfingar á við Dustin Johnson einnig.
Gunnlaugur Árni Sveinsson leikur einnig í lokaúrtökumóti í West Lancashire á þriðjudaginn. Þar leika m.a. Masters meistararnir Sergio Garcia og Danny Willet, ásamt Bryan bræðrum, sem eru YouTube stjörnur.
Frábær árangur hjá Haraldi. Við munum fylgjast vel með, og vonumst til að fá annan Íslending inn á stórmót á árinu.




