Auglýsing

Íslandsmót golfklúbba 2022 í kvennaflokki 50 ára og eldri fór fram á Hólmsvelli í Leiru 18.-20. ágúst.

Í 2. deild var keppt á Hólmsvelli i Leiru. Alls tóku 8 lið þátt. Keppt var í tveimur riðlum og leikin ein umferð í riðlinum. Tvö efstu liðin komust í undanúrslit þar sem að efsta liðið í A-riðli lék gegn liðinu í 2. sæti í B-riðli. Efsta liðið úr B-riðli lék gegn liðinu í 2. sæti í A-riðli. Liðin sem komust ekki í undanúrslit léku um sæti 5.-8. Einn fjórmenningsleikur og tveir tvímenningsleikir fóru fram í hverri umferð.

Golfklúbbur Suðurnesja sigraði Golfklúbb Kiðjabergs í úrslitaleiknum um efsta sætið og leikur GS í efstu deild á næsta ári. Sameiginlegt lið GHD og GFB sigraði Golfklúbb Akureyrar í leiknum um þriðja sætið.

Golfklúbbur Kiðjabergs.
Sameiginlegt lið GHD og GFB.
Lið Golfklúbbs Suðurnesja.

2. deild kvenna 50+
á Hólmsvelli í Leiru:

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

A-riðill
1.GA- Golfklúbbur Akureyrar.
2.Golfklúbburinn Hamar/Dalvík + Golfklúbbur Fjallabyggðar.
3. GÖ – Golfklúbbur Öndverðarness.
4. GB – Golfklúbbur Borgarness.
B-riðill
1.GS- Golfklúbbur Suðurnesja.
2.GKB – Golfklúbbur Kiðjabergs
3. GOS – Golfklúbbur Selfoss.
4. GHG – Golfklúbbur Hveragerðis.

GA – Golfklúbbur Akureyrar:
Birgitta Guðjónsdóttir, Birgitta Guðmundsdóttir, Eygló Birgisdóttir, Fanný Bjarnadóttir,
Guðlaug María Óskarsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir.

GS – Golfklúbbur Suðurnesja:
Karitas Sigurvinsdóttir, Þóranna Andrésdóttir, Anna María Sveinsdóttir, Sara Guðmundsdóttir, Guðrún Þorsteinsdóttir, Sigurrós Hrólfsdóttir.

GKB – Golfklúbbur Kiðjabergs:
Brynhildur Sigursteinsdóttir, Bergljót Kristinsdóttir, Guðný Tómasdóttir, Stella Hafsteinsdóttir, Þuríður Ingólfsdóttir, Áslaug Sigurðardóttir.

GHD/GFB – Golfklúbburinn Hamar/Dalvík + Golfklúbbur Fjallabyggðar:
Indíana Auður Ólafsdóttir, Björg Traustadóttir, Sigríður Guðmundsdóttir,
Sólveig Kristánsdóttir, Marsibil Sigurðardóttir.

GÖ – Golfklúbbur Öndverðarness:
Edda Gunnarsdóttir, Soffía Björnsdóttir, Kristín Guðmundsdóttir, Laufey Hauksdóttir, Sigrún Bragadóttir, Ljósbrá Baldursdóttir.

GOS – Golfklúbbur Selfoss:
Auður Róseyjardóttir, Ástfríður Sigurðardóttir, Jóhanna Þorsteinsdóttir, María Ragna Lúðvígsdóttir, Olga Lísa Garðarsdóttir, Petrína Freyja Sigurðardóttir.

GHG – Golfklúbbur Hveragerðis:
Ingibjörg Mjöll Pétursdóttir, Þuríður Gísladóttir, Margrét Jóna Bjarnadóttir,
Harpa Rós Björgvinsdóttir, Soffía Theodórsdóttir, Inga Dóra Konráðsdóttir.

GB – Golfklúbbur Borgarness:
Ásdís Helgadóttir, Margrét Katrín Guðnadóttir, Júlíana Jónsdóttir,
Fjóla Pétursdóttir, Guðrún R. Kristjánsdóttir.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ