Auglýsing

Eitt skemmtilegasta golfmót ársins fer fram dagana 14.-16. júlí og verður leikið á þremur mismunandi völlum. Um er að ræða Íslandsmót golfklúbba fyrir leikmenn 12 ára og yngri.

Smelltu hér fyrir stöðu, rástíma og úrslit.

Smelltu hér fyrir myndir frá mótinu á myndavef GSÍ – gsimyndir.net – Myndirnar tók Sigurður Elvar Þórólfsson / seth@golf.is

Íslandsmót golfklúbba 12 ára og yngri fór fyrst fram árið 2017 og er mótið í ár það fjórða frá upphafi.

Eins og áður segir er keppt á þremur keppnisvöllum. Fyrsti keppnisdagurinn er á Bakkakotsvelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar, annar keppnisdagurinn fer fram í Mýrinni hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, og lokadagurinn á Sveinkotsvelli hjá Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði.

Íslandsmeistarar golfklúbba 12 ára og yngri frá upphafi:

2017: GKG
2018: GS
2019: GS

Íslandsmót golfklúbba 12 ára og yngri

Keppnisskilmálar

Í hnotskurn:

  • Mótið heitir Íslandsmót golfklúbba 12 ára og yngri
  • 14. júlí hjá GM-Bakkakot
  • 15. júlí hjá GKG-Mýrin
  • 16. júlí hjá GK-Sveinskotsvelli sem jafnframt heldur verðlaunaafhendingu og lokahóf.
  • Fyrirmynd mótsins er PGA krakkagolf, og er sérstakt skorkort notað til að halda utan um stöðu leikja.
  • Mótsstjórn mótsins 2020 skipa Úlfar Jónsson GKG, Davíð Gunnlaugsson GM og Snorri Páll Ólafsson GR og Karl Ómar Karlsson GK.

Reglur mótsins 2020:

Nöfn leikmanna og uppröðun fyrir fyrstu umferð skal tilkynna til mótsstjórnar í síðasta lagi kl. 12:00 daginn fyrir fyrsta mótsdag. Hafi nafnalisti ekki borist í tíma er mótsstjórn heimilt að gefa klúbbi 3 tíma frest, en að honum loknum telst sveitin hafa fyrirgert keppnisrétti sínum.

Mótsstjórn er heimilt að fella niður keppni í einstökum deildum ef þátttökulið eru færri en þrjú.

Hver klúbbur sem sendir leikmenn á mótið skal tilnefna liðsstjóra. Liðsstjóri skal gæta hagsmuna keppenda viðkomandi klúbbs og koma fram fyrir þeirra hönd gagnvart mótsstjórn, þó ekki umfram það sem golfreglur heimila. Liðsstjóri skal fyrir hönd viðkomandi klúbbs vera ábyrgur fyrir greiðslu þátttökugjalds.

Í Íslandsmóti golfklúbba 12 ára og yngri mega sveitir vera skipaðar drengjum eingöngu, telpum eingöngu eða vera blandaðar báðum kynjum.  

Leikið verður eftir PGA Junior League fyrirmyndinni, sem kallast PGA krakkagolf á Íslandi.

Hver sveit skal skipuð að lágmarki 4 leikmönnum og að hámarki 6 leikmönnum.

Leiknar eru 9 holur í hverri umferð með Texas Scramble fyrirkomulagi, sem skiptast upp í þrjá þriggja holu leiki. Hver þriggja holu leikur gefur eitt flagg.

Liðsstjóri ákveður tvo keppendur sem hefja leik og jafnframt raðar niður varamönnum ef einhverjir eru í liðinu. Hver keppandi verður að leika að minnsta kosti eitt flagg (3 holur).

Hver viðureign tveggja klúbba gefur 1 stig því liði sem sigrar. Alls eru 6 flögg í pottinum og það lið sem leikur á færri höggum samtals hvern þriggja holu leik vinnur það flagg. Það lið sem vinnur fleiri flögg samtals vinnur viðureignina og eitt stig. Ef lið leika þriggja holu leik á jafn mörgum höggum fær hvort lið hálft flagg. Ef lið skilja jöfn með 3 flögg fær hvort lið hálft stig.

Hver ráshópur verður að hafa einn fullorðinn einstakling sem heldur utan um skorið.

Kylfuberar eru ekki leyfðir.

Keppninni er skipt upp í deildir, sem að hámarki geta orðið fjórar miðað við að leikið sé á 9 holu velli. Í hverri deild eru 6 sveitir og skal raða í deildir eftir forgjöf fjögurra forgjafarlægstu kylfinganna í hverri sveit.

Sex forgjafarlægstu sveitirnar fara í Hvítu deildina, næstu í Gulu deildina, næstu í Bláu deildina og loks í Rauðu deildina. Þó getur hver klúbbur aðeins verið með eina sveit í hverri deild. Þegar ljóst er hvaða sveitir skipa hverja deild skal draga um númer (1-6) hverrar sveitar í deildinni.

Sækja má um heimild til mótsstjórnar um að tveir eða fleiri klúbbar sendi sameiginlega sveit til keppni af sama landssvæði ef ekki reynist unnt að manna sveit til keppninnar.

Aldur miðast við almanaksár.

Mæti ekki lið sem tilkynnt hefur þátttöku til leiks á auglýstum tíma, hvort sem er í fyrstu eða síðari umferðum, skal sveitin sæta frávísun í heild. Úrslit leikja sem hún hefur leikið fyrr í keppninni falla niður og hafa þar af leiðandi ekki áhrif á úrslit mótsins, að undanskildu því að úrslit skulu standa ef öllum leikjum í riðlum er lokið.

Keppnin er leikin á eftirfarandi hátt:

Fyrsti keppnisdagur: Fyrsta umferð leika lið 1 gegn 2; 3 gegn 4; 5 gegn 6.

Fyrsti keppnisdagur: Önnur umferð leika lið 1 gegn 4; 3 gegn 6; 2 gegn 5.

Annar keppnisdagur: Þriðja umferð leika lið 1 gegn 3; 2 gegn 6; 4 gegn 5.

Annar keppnisdagur: Fjórða umferð leika lið 1 gegn 6; 2 gegn 4; 3 gegn 5.

Þriðji keppnisdagur: Fimmta umferð leika lið 1 gegn 5; 2 gegn 3; 4 gegn 6.

Ef þátttökufjöldi sveita er færri en 4 skal leita leiða til að sveitirnar leiki í hverri umferð engu að síður, innan sinnar deildar.

Það lið sem vinnur flest stig vinnur sína deild og fær titilinn Deildarmeistari viðkomandi deildar. Það lið sem hlýtur flest stig í Hvítu deildinni fær titilinn Íslandsmeistari golfklúbba. Hljóti tvö lið jafnmörg stig í efsta sæti ræður innbyrðis viðureign. Ef innbyrðis viðureign var jöfn eða ef fleiri en tvö lið fá jafnmörg stig, fær það lið sem vinnur fleiri flögg efra sætið.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ