Auglýsing

Íslandsmót eldri kylfinga fer fram á Vestmannaeyjavelli dagana 15. -17. júlí 2021. Opnað hefur verið fyrir skráningu. Skráningarfrestur er til kl. 23:59 mánudaginn 5. júlí.

Smelltu hér til að skrá þig:

Leikfyrirkomulag og rásröðun

Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um Íslandsmót í flokki eldri kylfinga og móta- og keppendareglum GSÍ. Leika skal 54 holur höggleik á þremur dögum. Aldur miðast við almanaksár. Ef jafnt er að loknum 54 holum skal leika þriggja holu umspil og síðan bráðabana ef þörf er, um 1. sæti. Komi til umspils um 1. sæti verða holur 16,17 og 18  leiknar og síðan 18. hola leikin endurtekið ef kemur til bráðabana. Ekki skal leikið um önnur sæti.

Smelltu hér til að skrá þig:

Í mótinu er eingöngu keppt í neðangreindum flokkum án forgjafar.

Þátttökuréttur

Öldungaflokkur karla (50 ára og eldri) 
Öldungaflokkur karla (65 ára og eldri)
Öldungaflokkur kvenna (50 ára og eldri)
Öldungaflokkur kvenna (65 ára og eldri)

Aldur miðast við almanaksár.

Hámarksfjöldi keppenda er 150, þar af 108 í flokkum 50 ára og eldri (54 karlar og 54 konur) og 42 í flokkum 65 ára og eldri (21 karl og 21 kona).

Þátttökurétt öðlast erlendir kylfingar ekki fyrr en eftir a.m.k. þriggja ára samfellda búsetu hérlendis. Þurfi að skera niður fjölda þátttakenda skulu forgjafarlægstu keppendur kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur fá þátttökurétt. Standi val á milli keppenda með jafnháa forgjöf skal hlutkesti ráða.

Verði ekki full skráning í einhverjum flokki skal fjölgað í flokki hins kynsins í sama aldursflokki. Að því frátöldu skal fjölga í hinum aldurflokknum, jafnt í báðum kynjum. Mótsstjórn er heimilt að fjölga keppendum í einstökum flokkum til að fylla í ráshópa.

Mótsstjórn er heimilt að takmarka rétt til þátttöku við forgjöf. Í flokkum 65 ára og eldri er notkun golfbíla heimiluð.

Ef keppandi er skráður í tvo flokka skal miða við skráningu hans í eldri flokkinn varðandi hámarksfjölda keppenda, tilfærslur ef ekki verður full skráning í flokka og við röðun í ráshópa.

Þátttökugjöld og skráning

Skráningarfrestur er til kl. 23:59 mánudaginn 5. júlí. Þátttökugjöld skulu greidd við skráningu. Þátttökugjald fæst einungis endurgreitt séu forföll boðuð eigi síðar en kl. 18:00, þremur dögum fyrir fyrsta keppnisdag. Þátttökugjald í mótið er 20.000 kr. og innifalið er miði á lokahóf laugardagskvöldið 17. júlí. Nánari upplýsingar um lokahóf verða birtar síðar.

Verði fullt í mótið munu keppendur sem komust ekki inn í mótið fá endurgreitt að móti loknu.

Smelltu hér til að skrá þig:

Rástímar og ráshópar

Rástímar verða birtir á GolfBox á miðvikudeginum 7. júlí. Ræst verður út af 1. teig með 10 mínútna millibili. Á fyrsta keppnisdegi er keppendum raðað út eftir forgjöfen alla aðra daga verður raðað út eftir skori. Ekki verða leyfðar breytingar á útgefnum rástímum eftir birtingu þeirra.

1. hringur, fimmtudagur: Rástímar frá klukkan 08:00 – 15:00

Rásröð: Konur 65+, Konur 50+, Karlar 50+, Karlar 65+

2. hringur, föstudagur: Rástímar frá klukkan 08:00 – 15:00

Rásröð: Karlar 50+, Karlar 65+, Konur 65+, Konur 50+

3. hringur, laugardagur: Rástímar frá klukkan 08:00 – 15:00

Rásröð: Karlar 65+, Konur 65+, Konur 50+, Karlar 50+

Æfingahringur

Einn æfingahringur án endurgjalds er heimilaður. Keppnisvöllurinn verður opinn til æfinga fyrir skráða keppendur í síðasta lagi einum degi fyrir mót. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn til að panta rástíma. Athugið reglur um æfingahringi. Nauðsynlegt er að hafa skráð sig í mótið og greitt mótsgjald til að mega leika æfingahring.

Verðlaun

Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í flokki karla 50 ára og eldri og kvenna 50 ára og eldri án forgjafar.

1. sæti: 40.000,- kr. Gjafakort Icelandair

2. sæti: 30.000,- kr. Gjafakort Icelandair

3. sæti: 15.000,- kr. Gjafakort Icelandair

Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í flokki karla 65 ára og eldri og kvenna 65 ára og eldri án forgjafar.

1. sæti: 40.000,- kr. Gjafakort Icelandair

2. sæti: 30.000,- kr. Gjafakort Icelandair

3. sæti: 15.000,- kr. Gjafakort Icelandair

Lokahóf fer fram á laugardagskvöldi í golfskálanum og verða verðlaun afhent þar.

Golfbílar

Í golfmótum á vegum GSÍ, að undanskildu Íslandsmóti eldri kylfinga, 65 ára og eldri, skal mótsstjórn aðeins veita þeim keppendum, sem framvísa vottorði frá tilnefndum trúnaðarlækni GSÍ, heimild til að nota golfbíl meðan á keppni stendur. Vottorðið skal staðfesta að keppandinn búi við langvarandi líkamlega fötlun og þurfi á golfbíl að halda við keppni, að því tilskildu að slíkt veiti keppandanum ekki ótilhlýðilegt forskot, sbr. undantekningu 1 við golfreglu 14-3. Trúnaðarlæknar GSÍ er Sveinbjörn Brandsson, sveinbjorn@orkuhusid.is og Valur Guðmundsson, valurgudm@gmail.com.

Umsókn um heimild til notkunar golfbíls skal senda mótanefnd GSÍ að minnsta kosti einni viku áður en mótið hefst. Umsóknin skal send til motanefnd@golf.is og henni skal fylgja afrit vottorðsins.

Mótsstjórn:

Þórður Ingason, Sigursveinn Þórðarson, Styrmir Jóhannsson, Hallgrímur Steinsson, Kristín María Þorsteinsdóttir 

Birt með fyrirvara um breytingar.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ