Auglýsing

ÍSÍ hefur úthlutað styrkjum úr Ferðasjóði íþróttafélaga vegna ferðakostnaðar íþrótta- og ungmennafélaga vegna þátttöku í fyrirfram skilgreindum styrkhæfum mótum ársins 2023. Til úthlutunar að þessu sinni voru 123,9 milljónir króna.

Til sjóðsins bárust 243 umsóknir frá 118 íþrótta- og ungmennafélögum úr 24 íþróttahéruðum vegna 2.949 ferða í 25 íþróttagreinum.

Heildarupphæð umsókna var 653.006.285,- krónur en umsækjendur skrá einungis beinan ferðakostnað í umsóknir, ekki gistingu eða uppihald. Þess má geta að skráður gistikostnaður, sem er valkvæð skráning í umsóknir til sjóðsins, var ríflega 97 milljónir króna.

Styrkirnir eru greiddir út beint til viðkomandi íþrótta- og ungmennafélags, skv. umsóknum. Umsækjendur geta nú farið inn í umsókn sína í gegnum vefslóðina sem fylgdi stofnun umsóknarinnar og séð úthlutun styrkja pr. ferð.

Unnið er að uppfærslum í umsóknarkerfinu en vænta má að umsóknarsvæði sjóðsins verði opnað á ný fyrir umsóknir vegna ferða á yfirstandandi ári í maímánuði.

Vinnuhópur ÍSÍ um Ferðasjóð íþróttafélaga er bakland fyrir skrifstofu ÍSÍ um afgreiðslu varðandi forsendur, fyrirspurnir og annað sem varðar þennan mikilvæga sjóð. Þau sem sitja í vinnuhópnum eru Valdimar Leó Friðriksson formaður, Árni Ólason, Engilbert Olgeirsson, Jóhann Króknes Torfason, Helga Sigrún Þórsdóttir og Ragnheiður Ríkharðsdóttir. Skrifstofa ÍSÍ annast yfirlestur umsókna og vinnur tillögu að úthlutun, í samræmi við samþykktar forsendur og í samráði við vinnuhópinn, sem síðan er lögð fyrir framkvæmdastjórn ÍSÍ til umfjöllunar og samþykktar.

Sjóðurinn hefur fengið árlegt framlag af fjárlögum Alþingis síðan árið 2007 og er haft samráð við mennta- og barnamálaráðuneytið um allar breytingar á grunnforsendum útreiknings styrkja. Framlag ríkisins til sjóðsins skiptir íþróttahreyfinguna gríðarlega miklu máli enda ferðakostnaður íþróttahreyfingarinnar stór þáttur í rekstri flestra íþróttafélaga, ekki síst á landsbyggðinni. Þó aðeins hluti mótahalds í landinu sé styrkhæfur í sjóðnum þá endurspegla umsóknir í Ferðasjóð íþróttafélaga gríðarlegt umfang ferðalaga og ferðakostnaðar í íþróttastarfinu á landsvísu og þær miklu áskoranir sem íþróttafélögin í landinu, og þá aðallega í dreifðari byggðum landsins, þurfa að mæta í rekstrinum til að veita iðkendum sínum tækifæri til þátttöku í íþróttamótum.

Hér má sjá samtölur pr. hérað. 

Hér má sjá samtölur pr. íþróttagrein: 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ