/

Deildu:

Auglýsing

Í tilefni 80 ára afmælis Golfsambands Íslands á þessu ári hefur sambandið framleitt hlaðvarpsþætti þar sem að fjallað verður um golfíþróttina frá ýmsum hliðum.

Markmiðið er að nýta þetta form miðlunar til þess að koma upplýsingum úr innra starfi GSÍ á framfæri. Golfsambandið hefur í gegnum tíðina nýtt ýmis form til þess að miðla upplýsingum og fréttum úr starfi golfhreyfingarinnar.

Tímaritsútgáfa er ekki lengur til staðar en þess í stað eru notaðar rafrænar leiðir til þess að miðla upplýsingum, á golf.is, í rafrænu fréttabréfi, samfélagsmiðlum og í nýjum hlaðvarpsþáttum.

Í þessum hlaðvarpsþætti er Haraldur Franklín Magnús, atvinnukylfingur. Haraldur Franklín er með keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni, Challenge Tour. Hann er eini karlkylfingurinn frá Íslandi sem hefur keppt á einu af risamótinum fjórum í karlaflokki.

Kristín María Þorsteinsdóttir, móta – og kynningarstjóri GSÍ og Sigurður Elvar Þórólfsson, útbreiðslustjóri GSÍ hafa umsjón með hlaðvarpi GSÍ.

Fyrri þættir eru hér fyrir neðan:




Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ