Auglýsing

Dómaranefnd GSÍ stendur fyrir héraðsdómaranámskeiði í marsmánuði eins og hefur verið gert síðustu ár. 

Fyrirlestrar verða 14., 16., 20. og 22. mars 2023, kl. 19:30 – 22:00.

Fyrirlestrar eru sendir út á netinu og einnig teknir upp.

Hægt er að skoða upptökuna seinna ef menn eru uppteknir þegar útsendingin á sér stað.

Námskeiðið er frítt fyrir meðlimi í golfklúbbum innan GSÍ.

Prófið verður rafrænt próf tekið á netinu þannig að það er engin fyrirstaða fyrir aðila á landsbyggðinni að sitja námskeiðið og taka prófið.
Það er þó ekki skilyrði að hafa setið námskeiðið til að geta tekið prófið.

Ætlast er til þess að þeir sem sitja héraðsdómaranámskeiðið byrji á því að undirbúa sig með því að
fara í gegnum 1.stigs golfregluskóla R&A, en íslensk þýðing á honum kemur á næstu vikum eins og allar golfreglurnar.

Þátttöku í héraðsdómaranámskeiði er hægt að tilkynna með því að skrá sig hér Skráning á námskeið eða senda tölvupóst á domaranefnd@golf.is með (kennitölu, nafni og heiti golfklúbbs).

Dómaranefndin vill skora á forráðamenn golfklúbba að ræða við þá félaga sem þeir telja að gætu haft áhuga á að starfa fyrir klúbbinn á sviði mótahalds og dómgæslu og hvetja þá til að afla sér dómararéttinda.

Með kveðju – Dómaranefnd GSÍ

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ