Auglýsing

Haraldur Franklín Magnús, GR, og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GKG, keppa á Opna portúgalska meistaramótinu sem fram fer dagana 15.-18. september á Royal Óbidos vellinum í Portúgal. Mótið er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu, Challenge Tour, sem er næst sterkasta atvinnumótaröð í karlaflokki í Evrópu.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

Lokakafli mótaraðarinnar er framundan en lokamótið fer fram í byrjun nóvember á Mallorca. Fram að því móti eru 6 mót á dagskrá að mótinu sem nú fer fram meðtöldu.

Haraldur Franklín og Guðmundur Ágúst eru í harðri baráttu um að komast í hóp 45 stigahæstu keppenda á Áskorendamótaröðinni – sem fá keppnisrétt á lokamótinu. Þar verður keppt um 20 sæti á sjálfri Evrópumótaröðinni.

Guðmundur Ágúst er í 86. sæti á stigalistanum og Haraldur Franklín er 88. sæti.

Haraldur Franklín Magnús á teig í Suður-Afríku. Mynd/IGTTour
Guðmundur Ágúst
Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Mynd/seth@golf.is

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ