Haraldur Franklín Magnús. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Haraldur Franklín Magnús lék gríðarlega vel á 3. keppnisdegi á Empordà Challenge mótinu sem fram fer á Spáni. Mótið er hluti af Áskorendamótaröðinni, Challenge Tour. Haraldur Franklín er í harðri baráttu um að komast í hóp 45 efstu á stigalista Challenge Tour og tryggja sér þar með keppnisrétt á lokamótinu.

Haraldur Franklín er í 50. sæti á stigalistanum en hann hefur hæst farið í sæti nr. 38. Besti árangur hans á tímabilinu er 2. sætið á B-NL mótinu sem fram fór Hollandi í lok ágúst.

Að þessu móti loknu eru aðeins tvö mót eftir á keppnistímabilinu fyrir lokamótið sem fram fer á Mallorca í nóvember.

Það er að miklu að keppa á lokamótinu á Mallorca. Þar tryggja 20 efstu sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni og þeir sem eru í sætum 21.-45. fá takmarkaðan keppnisrétt á stærstu atvinnumótaröð Evrópu.

Næst síðasta mótið fer fram á Empordà vellinum í Girona 19.-22. október.

Nánar um mótið – rástímar, staða úrslit.

Eins og sjá má á skorkortinu hér fyrir neðan lék Haraldur Franklín frábært golf í dag. Hann byrjaði hringinn með fimm fuglum í röð og alls fékk 9 fugla og 2 skolla. Hann lék á 64 höggum eða 7 höggum undir pari – samtals er hann á 10 höggum undir pari og í 5. sæti.

Lokamótið fer síðan fram dagana 4.-7. nóvember á T-Golf & Country Club á Mallorca en þangað komast 45 efstu á stigalista Áskorendamótaraðarinnar.

Aðeins tveir íslenskir kylfingar hafa náð að komast inn á lokamótið á Áskorendamótaröðinni, Birgir Leifur Hafþórsson árið 2017 og Guðmundur Ágúst Kristjánsson komst inn í fyrra. Birgir Leifur endaði í 35. sæti á stigalistanum árið 2017 þar sem hann sigraði á einu móti, fyrstur íslenskra kylfinga. Guðmundur Ágúst endaði í 46. sæti í fyrra.

Í upphafi ársins var Haraldur Franklín í sæti nr. 102 á stigalistanum en hann hefur leikið á 17 mótum á Áskorendamótaröðinni á tímabilinu. Í fyrra endaði Haraldur Franklín í 85. sæti á stigalistanum og besti árangur hans var 14. sæti.

Guðmundur Ágúst er í 85. sæti á stigalistanum á Áskorendamótaröðinni. Besti árangur hans á tímabilinu er 8. sæti á B-NL mótinu sem fram fór Hollandi í lok ágúst. Á þessu tímabiliu hefur Guðmundur Ágúst leikið á 17 mótum á Áskorendamótaröðinni. Guðmundur Ágúst náði ekki að komast í gegnum niðurskurðinn á mótinu sem nú stendur yfir.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ