Auglýsing

Haraldur Franklín Magnús, GR, hóf leik í dag á atvinnumóti sem fram fer í Suður-Afríku. Mótið er hluti af Challenge Tour atvinnumótaröðinni, sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í karlaflokki í Evrópu.

Mótið heitir Dimension Data Pro-Am og fer það fram á Fancourt Golf Estate golfsvæðinu við borgiuna George í Suður-Afríku.

Mótið er það þriðja í röð hjá GR-ingnum í Suður-Afríku – en hann náði góðum árangri Bain’s Whisky Cape Town Open sem lauk um s.l. helgi en það og fór fram á Royal Cape Golf Club, í Höfðaborg.

Haraldur Franklín endaði þar í 13. sæti á -11 samtals en hann lék hringina fjóra á 277 höggum (69-66-76-66).

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

Haraldur Franklín lék fyrir tveimur vikum á SDC Open sem fram fór á Zebula golfsvæðinu við borgina Limpopo í Suður-Afríku. Þar komst Haraldur Franklín ekki í gegnum niðurskurðinn en mótið var einnig hluti af Challenge Tour.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ