Auglýsing

Haraldur Franklín Magnús, atvinnukylfingur úr GR, keppir í þessari viku á Dormy Open mótinu sem fer fram dagana 24.-27. ágúst 2023. Mótið er hluti af Áskorendamótaröðinni, Challenge Tour, sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu.

Mótið fer fram á Askersunds Golfklubb í Åmmeberg.

Mótið hefst fimmtudaginn 24. ágúst og lokadagurinn er sunnudaginn 27. ágúst.

Haraldur Franklín hefur leikið á 10 mótum á tímabilinu og er hann í 129. sæti á stigalistanum.

Hann endaði í 31. sæti á Vierumäki Finnish Challenge mótinu sem fram fór í Finnlandi.

Besti árangur hans á tímabilinu er 19. sætið á móti sem fram fór um miðjan júní. Hann hefur komist í gegnum niðurskurðinn á sex mótum af alls níu á tímabilinu.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:


Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ