Haraldur Franklín Magnús. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Haraldur Franklín Magnús, atvinnukylfingur úr GR, var hársbreidd frá því að tryggja sér keppnisrétt á Opna bandaríska meistaramótinu. Haraldur Franklín keppti á úrtökumóti sem fór fram á Century Country Club og Old Oaks Country Club völlunum í Purchase, N.Y. í dag eða 6. júní.

Haraldur Franklín lék hringina tvo á 2 höggum undir pari samtals og var jafn í 3.-10. sæti eftir hringina tvo. Tveir efstu kylfingarnir léku á -3 samtals og tryggðu sér keppnisrétt á risamótinu en alls var keppt um 5 laus sæti á þessum keppnisstað – auk tveggja sæta á varamannalista mótsins.

Alls voru átta keppendur jafnir í sætum 3.-10. á -2 samtals og þurfti því að leika bráðabana um þrjú laus sæti.

Haraldur Franklín var þar á meðal. Allir keppendurnir fengu par á 1. holuna en leikið var í tveimur fjögurra manna ráshópum.

Á 2. holu bráðabanans fengu þrír leikmenn fugl en Haraldur Franklín og fjórir aðrir fengu par og komust því ekki beint inn á risamótið. Haraldur Franklín lék á ný í fimm manna bráðabana þar sem keppt var um 2 sæti á varamannalista fyrir mótið – og þar fékk GR-ingurinn skolla og féll þar með úr leik.

Lokastaða mótsins er hér:


Alls var keppt á 11 mismunandi keppnisstöðum þann 6. júní, á átta stöðum í Bandaríkjunum, einum í Kanada og einnig í Japan. Leiknar voru 36 holur á einum keppnisdegi.
Nánar um lokaúrtökumótið hér:

Á fyrsta stigi úrtökumótsins fyrir Opna bandaríska meistaramótið 2022 var leikið á 110 völlum og tóku rétt um 9000 keppendur þátt. Alls komust 530 áfram á lokaúrtökumótið sem fram fer eins og áður segir 6. júní.

Nánar hér um fyrsta stig úrtökumótsins:

Opna bandaríska meistaramótið er eitt af fjórum risamótum ársins hjá atvinnukylfingum í karlaflokki. Risamótið fer fram dagana 16.-19. júní og fer það fram á The Country Club vellinum í Brookline, Massachusetts. Mótið í ár er það 122. í röðinni.

Haraldur Magnús náði árið 2018 að komast inn á Opna mótið á Bretlandi með því að enda í öðru sæti á úrtökumóti á Englandi. Haraldur Franklín er eini karlkylfingurinn frá Íslandi sem hefur leikið á risamóti – en hann keppti á Opna mótinu á Carnoustie vellinum í Skotlandi 19. og 20. júlí 2018. Þar lék hann á +8 samtals (72-78) komst ekki í gegnum niðurskurðinn að loknum öðrum keppnisdegi sem var +3 eða betra.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir hafa báðar keppt á risamóti á atvinnumótaröð kvenna en risamótin í kvennaflokki eru alls fimm.

Ólafur Björn Loftsson spilaði á Whyndham-meistaramótinu sem er hluti af PGA-mótaröðinni árið 2011 og var hann fyrsti íslenski kylfingurinn sem lék á PGA mótaröðinni í Bandaríkjunum. Haraldur Franklín er sá annar í röðinni en Opna mótið er hluti af PGA-mótaröðinni.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ