Auglýsing

Haraldur Franklín Magnús, GR, keppti á Euram Bank Open mótinu sem fram fór dagana 13.-16. júlí á GC Adamstal vellinum við borgina Ramsau í Austurríki. Mótið er hluti af Challenge Tour, Áskorendamótaröðinni, sem er næst sterkasta atvinnumótaröð í karlaflokki í Evrópu.

Haraldur Franklín lék hringina fjóra á pari vallar samtals (70-69-72-69). Hann endaði í 54. sæti.

Smelltu hér fyrir úrslit á mótinu í Austurríki:

Haraldur er í 114. sæti á stigalista mótaraðarinnar. Í lok tímabilsins komast 45 efstu inn á lokamótið sem fram fer á Mallorca á Spáni. Að því móti loknu fá 20 efstu á stigalistanum keppnisrétt á DP World Tour – sem er í efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í karlaflokki í Evrópu.

Mótið í Austurríki var sjöunda mót tímabilsins hjá Haraldi Franklín á mótaröðinni. Hann hefur leikið á 53 mótum á þessari mótaröð frá árinu 2018. Besti árangur hans er 2. sætið og hann hefur einnig endað í þriðja sæti.

Haraldur Franklín Magnús. Mynd/Grímur Kolbeinsson.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ