GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Aerial view of Icelandic plains and rivers with a large circular emblem featuring a golfer silhouette over a flag-inspired background in the center of the image.
Kiðjaberg
Auglýsing

GJG Icelandic Juniors International 2026 fór fram á Kiðjabergsvelli dagana 8.-11. júní. Mótið er hluti af Global Junior Golf mótaröðinni, þar sem íslenskir kylfingar eru reglulega á meðal þátttakenda. Leiknir voru þrír keppnishringir á Kiðjabergsvelli þar sem margir af efnilegustu kylfingum landsins voru á meðal keppenda.

Í piltaflokki stóð Hafsteinn Thor Guðmundsson, GA, uppi sem sigurvegari. Hafsteinn lék hringina þrjá á 73, 71 og 73 höggum og lauk leik á 217 höggum, eða fjórum höggum yfir pari. Guðmundur Snær Elíasson varð annar á 219 höggum, sex höggum yfir pari, eftir hringi upp á 77, 70 og 72 högg. Þrír kylfingar voru jafnir í þriðja sæti á 222 höggum, níu yfir pari: Gunnar Þór Heimisson, Patrekur Máni Ævarsson og Guðjón Frans Halldórsson.

Young golfer wearing a medal and holding trophies, standing under a 'CHAMPION' banner with golf logos in the background, celebrating victory.
Hafsteinn eftir sigurinn mynd frá GJG

Þar á eftir komu Halldór Jóhannsson á 223 höggum og Ágúst Már Þorvaldsson á 224 höggum.

Í stúlknaflokki sigraði Guðrún Birna Snæþórsdóttir, GK. Guðrún lék hringina þrjá á 79, 74 og 80 höggum og endaði á 233 höggum, eða 20 höggum yfir pari. Sara María Guðmundsdóttir varð önnur á 246 höggum eftir flottan lokahring upp á 75 högg. Sigurást Júlía Arnarsdóttir varð þriðja á 251 höggi.

Three young women pose together outdoors on a sunny day, smiling, in athletic jackets and headbands, with golf banners in the background.
Guðrún Sigurást og Sara á fyrsta teig mynd GJG

Við óskum sigurvegurum og öllum þátttakendum til hamingju með árangurinn í mótinu.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ