Auglýsing

Þrír íslenskir kylfingar tóku þátt á einu sterkasta og virtasta unglingagolfmóti veraldar, German Boys & Girls Open.

Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR og Sara Kristinsdóttir, GM, kepptu á þessu móti. Ólafur Björn Loftsson, afrekssstjóri Golfsambands Íslands, var með í för.

Í stúlknaflokki voru rúmlega 100 keppendur og var mótið í efsta styrkleikaflokki á heimslista í stúlknaflokki. Hjá piltunum var mótið í þriðja efsta styrkleikaflokki og þar voru einnig um 100 keppendur.

Gunnlaugur Árni lék hringina þrjá á 221 höggum eða +5 samtals (75-73-73). Hann endaði í 36.-39. sæti.

Perla Sól lék hringina á 223 höggum eða +7 samtals (74-74-75) og endaði Perla Sól í 34.-39. sæti. Sara endaði í 106. sæti á 244 höggum og +28 samtals (80-81-83).

Tim Wiedemeyer frá Þýskalandi sigraði í piltaflokki á 203 höggum eða 13 höggum undir pari vallar samtals (66-67-70). Peer Hubbelrath Wernicke, frá Þýsklandi varð annar, á 208 höggum eða -5 samtals (69-70-69). Giovanni Manassero frá Ítalíu varð þriðji á 209 höggum -7 (69-68-72).

Hér er lokastaðan í piltaflokki:

Rocio Tejedo frá Spáni sigraði í stúlknaflokki á 206 höggum eða -10 samtals (69-68-69). Helen Briem frá Þýskalandi varð önnnur á 207 höggum eða -9 (69-69-69). Anna Canado Espinal frá Spáni varð þriðja á 209 höggum (70-71-68).

Hér er lokastaðan í stúlknaflokki:

Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar um mótið.

Mótið fór fram á hinu glæsilega golfsvæði St. Leon-Rot, en þar eru tveir 18 holu keppnisvellir og stórglæsilegt æfingasvæði – sem er í fremstu röð á heimsvísu.

Fjölmargir þjálfarar frá bandarískum háskólum mættu á þetta mót til að fylgjast með – enda eru flestir bestu kylfingar veraldar í þessum aldursflokki að keppa á þessu móti. Árið 2019 voru yfir 40 þjálfarar frá Bandaríkjunum að fylgjast með mótinu

Þetta er í 19. sinn sem mótið fer fram. Keppnin er 54 holur og eru leiknar 18 holur þrjá daga í röð. Það er engin niðurskurður eftir 36 holur og fá allir keppendur því að leika þrjá hringi.

Báðir keppnisvellir golfsvæðisins Golf Club St. Leon-Rot verða notaðir á þessu mót. Keppendur eru alls 200, 100 piltar og 100 stúlkur.

Keppendur eru 18 ára og yngri, en eftir 2. keppnisdag eru veitt verðlaun fyrir sigur í aldursflokknum 16 ára og yngri.

Smelltu hér fyrir rástíma og lokastöðu:

Smelltu hér fyrir lifandi skor frá mótinu.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ