Guðrún Brá Björgvinsdóttir.
Auglýsing

Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur úr Golfklúbbnum Keili er spáð stigameistaratitlinum á Eimskipsmótaröðinni í golfi kvenna 2016. Þetta kom fram í spá sérfræðinga sem golf.is fékk til þess að spá fyrir um hvaða fimm kylfingar myndu enda í fimm efstu sætunum í lok keppnistímabilsins. Guðrún Brá fékk 58 stig en Tinna Jóhannsdóttir úr GK varð önnur í þessari spá.

Spáin var kynnt á fundi með fréttamönnum í dag á Urriðavelli þar sem að helstu breytingarnar á Eimskipsmótaröðin 2016 voru m.a. kynntar.

Fimm efstu í spá sérfræðinga golf.is í kvennaflokki 2016.

1. Guðrún Brá Björgvinsdóttir (58)
2. Tinna Jóhannsdóttir (47)
3. Ragnhildur Kristinsdóttir (39)
4. Signý Arnórsdóttir (28)
5. Valdís Þóra Jónsdóttir (20)

Fyrsta mót ársins 2016 á Eimskipsmótaröðinni hefst á föstudaginn á Strandarvelli á Hellu.

Screen Shot 2016-05-18 at 6.36.44 PM

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ