Auglýsing

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR eru báðar á meðal keppenda á Jabra mótinu á LET Evrópumótaröðinni sem fram fer á hinum þekkta Evian golfvelli í Frakklandi dagana 19.-21. maí.

Ólafía Þórunn hefur leik kl. 07:09 að íslenskum tíma fimmtudaginn 19. maí og Guðrún Brá hefur leik kl. 07:41 að íslenskum tíma – en staðartími í Frakklandi er tveimur tímum á undan íslenskum tíma.

Þetta er fyrsta mótið hjá Ólafíu Þórunni á sterkustu atvinnumótaröð í kvennaflokki í Evrópu á þessau tímabili – en hún keppti síðast á atvinnumóti í september árið 2020. Ólafía Þórunn er með takmarkaðan keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni á þessu tímabili.

Guðrún Brá er með keppnisrétt á flestum mótum á LET Evrópumótaröðinni. Hún hefur leikið á átta mótum á tímabilinu. Besti árangur hennar er 27. sæti og hún hefur komist í gegnum niðurskurðinn á sex mótum.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

Eins og áður segir keppti Ólafía Þórunn síðast á atvinnumóti í september árið 2020. Hún er búsett í Þýskalandi ásamt unnusta sínum Thom­as Bojanowsk og syni þeirra Maroni sem fæddist þann 29. júní í fyrra.

Ólafía Þórunn fékk keppnisrétt árið 2016 á LET Evrópumótaröðinni. Hún lék á sjö mótum árið 2016 og besti árangur hennar var 14. sætið. Árið 2017 lék hún á 3 mótum og 13. sæti var besti árangur hennar á því tímabili. Árið 2018 lék Ólafía Þórunn á sex mótum – og bestir árangur hennar á því tímabili var 11. sætið. Árið 2019 lék Ólafía Þórunn á þremur mótum á LET Evrópumótaröðinni og hún lék á tveimur mótum árið 2020 á LET.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ