Guðrún Brá Björgvinsdóttir: Mynd/ Tristan Jones/LET
Auglýsing

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr Keili Hafnarfirði, lauk keppni í nótt á NSW Open sem fram fór í Ástralíu. Þrefaldi Íslandsmeistarinn endaði í 27. sæti á +4 samtals sem er besti árangur hennar á tímabilinu.

Guðrún Brá lék hringina fjóra á 292 höggum (75-71-72-74). Á lokaholunni á þriðja keppnisdegi lék Guðrún Brá á 2 höggum eða 3 höggum undir pari. Þar setti hún boltann ofaní af um 200 metra færi með 3-tré og fékk hinn sjaldgjæfa „Albatross“. Líkurnar á því að slá slíkt högg ofaní holu er um 1 á móti 6 milljónum.

Næsta mót hjá Guðrúnu Brá fer fram í Bangkok í Taílandi dagana 12.-14. maí. Á því móti eru aðeins stigahæstu kylfingar LET mótaraðarinnar og þar verða einnig leikmenn sem eru í fremstu röð á LPGA mótaröðinni.

Verðlaunafé á þessu móti í Taílandi er mun hærra en á öðrum mótum en heildarverðlaunaféð er 1 milljón bandaríkjadalir eða rúmlega 130 milljónir kr. Til samanburðar var heildarverðalaunaféð á mótinu í Ástralíu 42 milljónir kr.

Guðrún Brá fékk tæplega 400.000 kr. í verðlaunafé fyrir 27. sætið á NSW mótinu í Ástralíu.

Smelltu hér fyrir stöðu, rástíma og úrslit mótsins.

Þrefaldi Íslandsmeistarinn í golfi er með fullan keppnisrétt á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu, líkt og undanfarin ár. Hún hefur tekið þátt á sex mótum á tímabilinu.

Á tveimur mótum hefur hún endað í 55. sæti, í 52. sæti á einu og á tveimur þeirra hefur hún ekki komist í gegnum niðurskurðinn. Hún er í sæti nr. 96 sæti á stigalista mótaraðarinnar og fer hún upp um 21 sæti á milli vikna.

Smelltu hér fyrir stigalistann í heild sinni.

Á fjórða tug móta eru á keppnisdagskrá LET Evrópumótaraðarinnar.

Keppnisdagskrá LET 2022 er hér í heild sinni:

Guðrún Brá gerðist atvinnukylfingur árið 2018. Hún er fjórða konan frá Íslandi sem tryggir sér keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni. Ólöf María Jónsdóttir, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir hafa einnig verið með keppnisétt á LET.

Alls lék Guðrún Brá á 16 mótum á LET Evrópumótaröðinni á síðasta tímabili. Besti árangur hennar á árinu 2021 var 12. sæti. Hún varð Íslandsmeistari í holukeppni 2020 á Þorláksvelli.

Á heimslistanum hefur Guðrún Brá farið upp um rúmlega 270 sæti á árinu 2021 en hún er í sæti nr. 607 á heimslistanum.

Guðrún Brá lék á lokamóti LET Evrópumótaraðarinnar, annað árið í röð. Guðrún Brá endaði í 75. sæti á stigalistanum á LET Evrópumótaröðinni en árið 2020 endaði hún í sæti nr. 127 á stigalistanum.

Það eru mörg ferðalög framunda á þessu ári hjá Guðrúnu Brá líkt og undanfarin ár. Mótin á LET fara fram í fimm mismunandi heimsálfum, Afríku, Asíu, Eyjaálfu, Evrópu og Norður-Ameríku.

Afríka (3 mót)
Kenía (1 mót)
Suður-Afríka (2 mót)

Asía (5 mót)
Sádí-Arabía (2 mót)
Indland
Dubaí
Eitt mót fer fram Asíu þar sem á eftir að staðfesta keppnisstað.

Eyjaálfa (2 mót)
Ástralía, (2 mót)

Evrópa (20 mót)
Spánn (4 mót)
Frakkland (3 mót)
Belgía,
Svíþjóð (2 mót)
England
Tékkland,
Holland,
Skotland (2 mót)
Norður-Írland
Finnland
Sviss
Írland
Eitt mót fer fram Evrópu þar sem á eftir að staðfesta keppnisstað.

Norður-Ameríka (1 mót)
Bandaríkin.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ