Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, er í 30. sæti eftir fyrsta keppnisdaginn á Scandic PGA meistaramótinu sem hófst í dag í Svíþjóð. 
Mótið er hluti af LET Access atvinnumótaröðinni, næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í kvennaflokki. 
Leikið er á Allerum vellinum skammt frá Helsinborg. Þetta er í annað sinn sem Guðrún Brá tekur þátt á þessu móti á þessum velli. 
Guðrún Brá, sem er ríkjandi Íslandsmeistari í golfi, lék fyrsta hringinn á 71 höggi eða einu höggi undir pari vallar.

 
								 
								 
				 
				 
				 
				 
				 
				 
								 
                                 
                                 
                                 
                                 
                                 
                                


