GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Dagbjartur Sigurbrandsson og Hlynur Bergsson enduðu báðir á meðal tíu efstu á Folksam Championship í Svíþjóð sem lauk í dag. Dagbjartur varð jafn í fjórða sæti á átta höggum undir pari og Hlynur jafn í tíunda sæti á fimm höggum undir pari.

Dagbjartur lék lokahringinn á 71 höggi, tveimur undir pari. Hann var jafn í fjórða sæti fyrir hringinn og hélt því sæti sínu með spilamennsku dagsins. Dagbjartur lék fyrsta hringinn á 68 höggum og annan hringinn á 72. Hann deildi fjórða sætinu með Svíunum Oliver Lilliedahl og Albin Tidén. Árangurinn jafnar besta árangur hans á mótaröðinni í sumar.

Hlynur fór inn í lokahringinn jafn í efsta sæti ásamt Tidén og Finnanum Oskari Nikku. Hann hafði leikið fyrstu tvo hringina á 69 og 70 höggum og var þá sjö höggum undir pari. Lokahringinn lék hann á 75 höggum, tveimur yfir pari, og lauk mótinu á 214 höggum.

Svíinn Algot Kleén vann mótið á 13 höggum undir pari. Lokahringur upp á átta högg undir pari tryggði honum sigur með tveggja högga mun.

Folksam Championship fór fram á Barsebäck Golf & Resort dagana 23.-25. september og var hluti af Nordic Golf League mótaröðinni. Flottur árangur hjá okkar mönnum, óskum þeim til hamingju.

Skoða úrslit Folksam Championship

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ