GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Atvinnukylfingarnir Dagbjartur Sigurbrandsson og Hlynur Bergsson fóru báðir vel af stað á Folksam Championship í Svíþjóð. Mótið fer fram dagana 23.-25. september á Barsebäck Golf & Resort og er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni.

Dagbjartur lék fyrsta hringinn á 68 höggum, fimm undir pari, og er í þriðja sæti mótsins. Hlynur kom inn á 69 höggum, fjórum undir pari, og er jafn í fjórða sæti.

Dagbjartur fékk sex fugla og einn skolla á hringnum. Hann lék fyrri níu holurnar á 33 höggum og þær seinni á 35. Hlynur fékk einnig sex fugla, auk tveggja skolla.

Hringur Dagbjarts
Hringur Hlyns

Norðmaðurinn Sebastian Eidsæther Syr leiðir mótið á sjö höggum undir pari. Okkar menn eru skammt á eftir og í góðum málum fyrir næstu hringi.

Íslendingarnir eru hlið við hlið á stigalista mótaraðarinnar: Dagbjartur í 30. sæti og Hlynur í því 31. Báðir hafa þeir best verið í fjórða sæti í sumar

Fylgjast með stöðu mótsins

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ