Guðrún Brá Björgvinsdóttir í Sádí Arabíu 2020. Mynd/Tristan Jones.
Auglýsing

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr Keili Hafnarfirði, keppir næst á Investec South African Women’s Open sem fram fer dagana 30. mars – 2. apríl. Mótið er hluti af LET Evrópumótaröðinni, sem er í efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í kvennaflokki í Evrópu.

Mótið fer fram á Steenberg golfsvæðinu í Suður-Afríku. Á þessu móti verða leiknir fjórir 18 holur hringir, alls 72 holur.

Smelltu hér fyrir stöðu, rástíma og úrslit mótsins.

Þrefaldi Íslandsmeistarinn í golfi er með fullan keppnisrétt á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu, líkt og undanfarin ár. Hún hefur tekið þátt á þremur mótum á tímabilinu. Á tveimur mótum hefur hún endað í 55. sæti og á einu þeirra hefur hún ekki komist í gegnum niðurskurðinn. Hún er í sæti nr. 88. á stigalista mótaraðarinnar þessa stundina.

Smelltu hér fyrir stigalistann í heild sinni.

Á fjórða tug móta eru á keppnisdagskrá LET Evrópumótaraðarinnar.

Keppnisdagskrá LET 2022 er hér í heild sinni:

Guðrún Brá gerðist atvinnukylfingur árið 2018. Hún er fjórða konan frá Íslandi sem tryggir sér keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni. Ólöf María Jónsdóttir, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir hafa einnig verið með keppnisétt á LET.

Alls lék Guðrún Brá á 16 mótum á LET Evrópumótaröðinni á síðasta tímabili. Besti árangur hennar á árinu 2021 var 12. sæti. Hún varð Íslandsmeistari í holukeppni 2020 á Þorláksvelli.

Á heimslistanum hefur Guðrún Brá farið upp um rúmlega 270 sæti á árinu 2021 en hún er í sæti nr. 607 á heimslistanum.

Guðrún Brá lék á lokamóti LET Evrópumótaraðarinnar, annað árið í röð. Guðrún Brá endaði í 75. sæti á stigalistanum á LET Evrópumótaröðinni en árið 2020 endaði hún í sæti nr. 127 á stigalistanum.

Það eru mörg ferðalög framunda á þessu ári hjá Guðrúnu Brá líkt og undanfarin ár. Mótin á LET fara fram í fimm mismunandi heimsálfum, Afríku, Asíu, Eyjaálfu, Evrópu og Norður-Ameríku.

Afríka (3 mót)
Kenía (1 mót)
Suður-Afríka (2 mót)

Asía (5 mót)
Sádí-Arabía (2 mót)
Indland
Dubaí
Eitt mót fer fram Asíu þar sem á eftir að staðfesta keppnisstað.

Eyjaálfa (2 mót)
Ástralía, (2 mót)

Evrópa (20 mót)
Spánn (4 mót)
Frakkland (3 mót)
Belgía,
Svíþjóð (2 mót)
England
Tékkland,
Holland,
Skotland (2 mót)
Norður-Írland
Finnland
Sviss
Írland
Eitt mót fer fram Evrópu þar sem á eftir að staðfesta keppnisstað.

Norður-Ameríka (1 mót)
Bandaríkin.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ