Auglýsing

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr Keili, endaði í 42. sæti á lokaúrtökumótinu fyrir LET European Tour. Mótið fór fram á La Manga á Spáni þar sem að 1. stig úrtökumótsins fór einnig fram.

Guðrún Brá lék fimm hringi, alls 90 holur, á tveimur höggum yfir pari samtals (73-71-73-72-73) en hún var fimm höggum frá 23. sætinu sem hefði tryggt fullan keppnisrétt á LET Evrópumótaröðini.

20 efstu í mótslok fengu keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni í styrkleikaflokki 12. Þeir keppendur sem voru jafnir í 20. sæti fengu allir keppnisrétt og var heildartalan því 23.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit á lokaúrtökumótinu á Spáni.

Það var mikilvægt fyrir Guðrúnu Brá að enda á meðal 50 efstu. Þar sem að keppendur í sætum 21.-50 fá keppnisrétt í styrkleikaflokki 16 á LET Evrópumótaröðinni og eru með keppnisrétt á mörgum mótum á næsta tímabili – en ekki eins mörgum og þeir keppendur sem náðu að vera í 20 efstu sætunum.

Guðrún Brá ætti því að fá fjölmörg verkefni á sterkustu mótaröð Evrópu hjá atvinnukylfingum í kvennaflokki á næsta tímabili – og hún getur einnig fengið öll verkefni sem eru í boði á LET Access mótaröðinni – sem er næst sterkasta atvinnumótaröð Evrópu.

Guðrún Brá hefur verið með keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni frá árinu 2020. Hún tryggði sér keppnisrétt á mótaröðinni í janúar árið 2020 á lokaúrtökumótinu – þar sem hún lék 90 holur á þremur höggum yfir pari samtals á sömu keppnisvöllum. Árangur hennar í ár var því einu höggi betri en árið 2020 en það dugði ekki til að vera á meðal 20 efstu að þessu sinni.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit á lokaúrtökumótinu á Spáni.

Hún hóf leik á Suður-vellinum og lék á pari vallar og á öðrum hringnum á Norður-vellinum lék hún einnig á pari eða 71 höggi. Á þriðja hringnum lék hún á +1 á Suður-vellinum eða 74 höggum. Hún lék á Norður-vellinum á fjórða hringnum og var á pari vallar, 72 högg. Á lokahringnum lék hún Suður-völlinn á pari og samtals +2.

Alls voru leiknir fimm keppnishringir á lokaúrtökumótinu á Norður- og Suður völlum golfsvæðisins. Fyrstu fjóra dagana léku keppendur tvívegis á hvorum velli fyrir sig, en lokahringurinn var leikinn á Suður-vellinum.

Norður-völlurinn er par 71 (35-36) og verður hann á bilinu 5100-5600 metrar að lengd.
Suður-völlurinn er par 73 (37-36) og verður hann á bilinu 5600 – 6.100 metrar að lengd.

Alls tóku 146 keppendur þátt og komu þeir frá 31 mismunandi löndum.

Alls voru leiknar 90 holur á fimm dögum. Eftir 72 holur var niðurskurður þar sem að 60 efstu komust áfram.

20 efstu í mótslok fengu keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni í styrkleikaflokki 12. Þeir keppendur sem voru jafnir í 20. sæti fengu allir keppnisrétt og var heildartalan því 23.

Keppendur í sætum 21.-50 fá keppnisrétt í styrkleikaflokki 16 á LET Evrópumótaröðinni og eru með keppnisrétt á mörgum mótum á næsta tímabili – en ekki eins mörgum og þeir keppendur sem náðu að vera í 20 efstu sætunum.

Guðrún Brá hefur verið með keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni frá árinu 2020. Hún gerðist atvinnukylfingur árið 2018 og var með keppnisrétt á næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu, LET Access, árið 2018 og 2019. Hún tryggði sér keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni á lokaúrtökumótinu í lok janúar árið 2020.

Á því móti endaði hún í 17. sæti á +3 samtals á fimm hringjum eða 90 holum.

Alls hafa fjórar íslenskar konur komist inn á LET Evrópumótaröðina. Ólöf María Jónsdóttir var sú fyrsta, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir var önnur í röðinni, Valdís Þóra Jónsdóttir sú þriðja og Guðrún Brá sú fjórða árið 2020. Ef Guðrúnu Brá tekst að tryggja sér keppnisrétt á ný verður hún fyrsta konan frá Íslandi sem fetar þessa leið í annað sinn á ferlinum.

Eins og áður segir lék Guðrún Brá á 1. stigi úrtökumótsins á þessum völlum dagana 10.-13. desember s.l. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, lék einnig á því móti.

Guðrún Brá lék hringina fjóra á 4 höggum yfir pari samtals (72-77-73-70) og endaði hún í 20. sæti og komst þar með inn á lokaúrtökumótið. Lokahringurinn var besti hringur Guðrúnar þar sem hún lék á tveimur höggum undir pari.

Ragnhildur lék hringina fjóra á +14 samtals og endaði hún jöfn í 81. sæti. Ragnhildur lék á (71-77-72-82) og hefði hún þurft að leika á +10 samtals til þess að komast inn á lokaúrtökumótið.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ