Guðrún Brá Björgvinsdóttir.
Auglýsing

Guðrún Brá Björgvinsdóttir endaði í  8. sæti á háskólagolfmóti með Fresno State liðinu.  Í liðakeppninni endaði Fresno State í þriðja sæti en mótið fór fram um s.l. helgi.  Greint er frá þessu á heimasíðu Keilis.

Guðrún lék best allra í sínu liði eða á fjórum höggum yfir pari (76,74,70) og endaði í 8. sæti af 90 keppendum. Hún hefur leikið mjög vel undanfarið og hefur verið með besta skor af liðsfélögum undanfarin þrjú mót í röð.

Næsta verkefni hjá Guðrúnu og liðsfélögum hennar verður 18.-20. apríl. Þá verður leikið á Mountain West meistaravellinum (Dinah Shore) í Kaliforníu.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ