Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Gunnlaugur Árni Sveinsson voru bæði á meðal keppenda í stórum alþjóðlegum mótum í vikunni.
Guðrún var á meðal keppenda Investec SA Women’s Open á LET mótaröðinni. Mótið fór fram á Royal Cape Golf Club í Höfðaborg og var annað mót hennar á tímabilinu.
Guðrún lék fyrsta hring mótsins á 73 höggum eða pari vallarins. Íslandsmeistarinn fékk tvo fugla og tvo skolla á hringnum og var jöfn í 64. sæti mótsins. Efstu 60 kylfingar mótsins náðu í gegnum niðurskurð eftir annan hring.
Annan hring mótsins lék Guðrún á 77 höggum og lauk leik á fjórum höggum yfir pari í mótinu, jöfn í 100. sæti.
Næsta mót Guðrúnar á LET mótaröðinni verður MCB Ladies Classic mótið í Máritíus, sem fer fram dagana 1.-3. maí.
Hér má sjá stöðu og úrslit mótsins


Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur lokið leik á SEC Championship mótinu ásamt liði sínu úr LSU háskólanum. Mótið fór fram á Sea Island Golf Club vellinum og markaði upphafið á lokahluta tímabilsins hjá Gunnlaugi.
Fyrsta hring mótsins lék Gunnlaugur á 70 höggum, eða pari vallarins. Annan hringinn lék hann á 75 höggum og var landsliðskylfingurinn jafn í 66. sætinu. Þriðja hringinn lék Gunnlaugur einn yfir pari og endaði mótið á sex yfir í heildina, jafn í 60. sæti.
Lið Gunnlaugs í LSU hafnaði í tólfta sæti mótsins í liðakeppninni, en efstu átta liðin héldu áfram í útsláttarhluta mótsins.
Hér má fylgjast með stöðu og úrslitum mótsins




