Þrír íslenskir kylfingar tóku þátt á Bravo Tours Open atvinnumótinu sem er hluti af Nordic Tour atvinnumótaröðinni. Mótið fór fram í Tønder í Danmörku á Rømø Golf Links vellinum.
Kylfingarnir eru allir úr Golfklúbbi Reykjavíkur. Guðmundur Ágúst Kristjánsson endaði í 43. sæti á +11 samtals (75-76-76). Haraldur Franklín Magnús endaði í 50. sæti á +12 samtals (77-73-78) og Andri Þór Björnsson lék á 83-77 og komst ekki í gegnum niðurskurðinn eftir 2. keppnisdag.
Sigurvegarinn var danski áhugamaðurinn Nicolai Höjgaard sem lék á -5 samtals.
![- Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/18716788_1885521565039014_1147935785_n-1024x768.jpg)