Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GKG. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, atvinnukylfingur úr GKG, hefur á undanförnum tveimur vikum þokað sér upp stigalistann á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í karlaflokki, DP World Tour. Hann endaði í 51. sæti á á Thailand Classic mótinu sem lauk s.l. sunnudag. Í vikunni þar á undan endaði hann í 49. sæti.

Á þessu tímabili hefur Guðmundur Ágúst leikið á sjö mótum á DP World Tour. Hann hefur komist í gegnum niðurskurðinn á tveimur síðustu mótum. Hann fór upp um 23 sæti á stigalistanum eftir mótið í Taílandiog er í sæti nr. 182. Alls eru 244 keppendur á stigalistanum og var Guðmundur Ágúst í sæti nr. 205 í síðustu viku.

Guðmundur Ágúst fékk rúmlega 7.100 Evrur í verðlaunafé í Taílandi eða rétt rúmlega 1.150 þúsund kr. Á tímabilinu hefur Guðmundur Ágúst fengið tæplega 2,4 milljónir kr. í verðlaunafé.

Á fimmtudaginn í þessari viku hefur Guðmundur Ágúst keppni á Hero Indian Open mótinu sem fram fer í Nýju Delí dagana 23.-26. febrúar.

Nánari upplýsingar um mótið á Indlandi er hér:

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit á mótinu í Taílandi.

Sýnt er frá DP World Tour á sjónvarpsstöðinni Viaplay.

Guðmundur Ágúst lék hringina fjóra í Taílandi 70-70-72-70. Hann fékk alls alls 18 fugla (-1), 10 skolla (+1) og einn skramba (+2)

Guðmundur Ágúst náði sínum besta árangri á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í karlaflokki í þar síðustu viku þegar hann endaði í 49. sæti í Singapúr Lokahringurinn var eftirminnilegur hjá Guðmundi Ágústi þar sem hann sló draumahöggið á 11. holu af um 180 metra færi – og fór holu í höggi.

Hann lék hringina fjóra á 6 höggum undir pari vallar eða 282 höggum. Hann fékk alls 19 fugla á hringjunum fjórum og einn örn þegar hann fór holu í höggi á lokahringnum. Hann endaði í 49. sæti og fór upp um 17 sæti á lokahringnum.

Guðmundur Ágúst fékk rúmlega 7800 Evrur í verðlaunafé eða rúmlega 1,2 milljónir kr. Guðmundur fékk einnig sín fyrstu stig á stigalista DP World Tour er hann í sæti nr. 205 af alls 239 keppendum sem hafa náð stigum á tímabilinu.

Hér má sjá skorkortið hjá Guðmundi Ágústi frá því í Singapúr.

Guðmundur Ágúst tryggði sér keppnisrétt á DP World Tour s.l. haust á lokaúrtökumótinu sem fram fór á Spáni. Hann lék á þremur mótum í Suður-Afríku og einu á Máritíus í lok síðasta árs. Hann lék í í Singapúr í síðustu viku og mótið í Taílandi er það sjöunda hjá GKG-ingnum á keppnistímabilinu.

Guðmundur Ágúst er sjöundi keppandinn sem slær draumahöggið á DP World Tour á þessu tímabili.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ