Auglýsing

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GKG og Haraldur Franklín Magnús, GR, eru báðir á meðal keppenda á lokaúrtökumótinu fyrir Opna mótið 2022, sem er eitt af risamótunum fjórum á þessu ári hjá atvinnukylfingum í karlaflokki.

Íslensku kylfingarnir leika á The Prince’s vellinum á Englandi en leikið er á fjórum keppnisvöllum á sama tíma, þriðjudaginn 28. júní.

Keppnisfyrirkomulagið er höggleikur og verða leiknar 36 holur á einum keppnisdegi – og fjórir keppendur af hverjum velli fyrir sig komast inn á sjálft risamótið sem fram fer á St. Andrews vellinum í Skotlandi um miðjan júlí.

Smelltu hér fyrir stöðuna á The Prince’s.

Smelltu hér fyrir stöðuna á lokaúrtökumótinu á völlunum fjórum:

Alls eru 288 keppendur á völlunum fjórum og alls komast 16 áfram, fjórir af hverjum velli.

Ef kylfingar eru jafnir í sætunum sem gefa keppnisrétt á Opna mótinu þá er leikinn bráðabani um það hverjir komast áfram.

Haraldur Franklín hefur komist inn á Opna mótið með því að vera í einu af efstu sætunum á lokaúrtökumóti – en það gerði hann árið 2018 á þessum sama keppnisvelli, The Prince’s. Þar lék hann á tveimur höggum undir pari samtals og tryggði sér keppnisrétt á Opna mótinu á Carnoustie vellinum – fyrstur íslenskra karlkylfinga.

Lokaúrtökumótið fer fram á fjórum völlum á sama tíma:

Fairmont St. Andrews
Hollinwell
Prince’s
St. Annes old Links.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ