Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GKG, á Íslandsmótinu í golfi 2023. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, atvinnukylfingur úr GKG, keppir á D+D Real Czech Masters dagana 24.-27. ágúst – en mótið er hluti af DP World Tour sem er sterkasta atvinnumótaröð Evrópu í karlaflokki. Mótið fer fram á Albatross Golf Resort, rétt við Prag í Tékklandi.

Guðmundur Ágúst hefur leikið á 18 mótum á tímabilinu og komist í gegnum niðurskurðinn á fimm þeirra.

Í síðustu viku endaði hann í 24. sæti á ISPS HANDA World mótinu sem fram fór á Norður-Írlandi. Það er besti árangur hans á tímabilinu.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

DP World Tour er sterkasta atvinnumótaröð Evrópu í karlaflokki. Guðmundur Ágúst tryggði sér keppnisrétt á DP World Tour s.l. haust á lokaúrtökumótinu.

Sýnt er frá mótinu á VIAPLAY.


Á þessu tímabili hefur Guðmundur Ágúst leikið á 18 mótum á DP World Tour. Hann komst í gegnum niðurskurðinn á þremur mótum í röð sem er besti árangur sem íslenskur karlkylfingur hefur náð á mótaröð í efsta styrkleikaflokki í Evrópu.

Hann hefur nú fengið alls 64 stig og er í sæti nr. 192 á stigalistanum. Hann fór upp um 18 sæti eftir mótið á Bretlandi.

Alls eru 298 keppendur á stigalistanum. Til þess að halda keppnisrétti sínum á DP World Tour þarf Guðmundur Ágúst að vera á meðal 120 efstu á stigalistanum í lok tímabilsins.

Besti árangur hjá íslenskum kylfingi á DP World Tour er 11. sætið. Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, varð í 11. sæti á Telecom Italia Open sem fram fór í maí árið 2007.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ