Guðmundur Ágúst Kristjánsson. Mynd/KÁ
Auglýsing

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, atvinnukylfingur úr GKG, endaði jafn í 48. sæti á Hero Indian Open mótinu sem lauk í dag á Indlandi. Guðmundur Ágúst lék samtals á 6 höggum yfir pari vallar eða 294 höggum (68-71-77-78). Hann var jafn í öðru sæti þegar keppni var hálfnuð á 5 höggum undir pari vallar samtals.

Þjóðverjinn Marcel Siem fagnaði sigri á mótinu, á -14 samtals, og var þetta fyrsti sigur hins 42 ára reynslumikla keppenda í rúmlega 9 ár – og sá fimmti á síðustu tveimur áratugum á hans ferli.

Mótið er hluti af DP World Tour atvinnumótaröðinni, sem er í efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu.

Nánari upplýsingar um mótið á Indlandi, lokastaða og úrslit – smelltu hér:

Besti árangur hjá íslenskum kylfingi á DP World Tour er 11. sætið. Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, varð í 11. sæti á Telecom Italia Open sem fram fór í maí árið 2007.

Guðmundur Ágúst keppir næst á móti sem fram fer í Kenía – dagana 9.-12. mars.


Guðmundur Ágúst hefur á undanförnum tveimur vikum þokað sér upp stigalistann á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í karlaflokki, DP World Tour. Hann endaði í 51. sæti á á Thailand Classic mótinu sem lauk s.l. sunnudag. Í vikunni þar á undan endaði hann í 49. sæti.

Á þessu tímabili hefur Guðmundur Ágúst leikið á átta mótum á DP World Tour. Hann hefur komist í gegnum niðurskurðinn á þremur síðustu mótum sem er besti árangur sem íslenskur karlkylfingur hefur náð á mótaröð í efsta styrkleikaflokki í Evrópu.

Hann fór upp um 23 sæti á stigalistanum eftir mótið í Taílandiog var í sæti nr. 182 fyrir mótið á Indlandi. Hann hefur nú fengið alls 37.7 stig og er í sæti nr. 169 á stigalistanum.

Alls eru 244 keppendur á stigalistanum og var Guðmundur Ágúst í sæti nr. 205 fyrir þremur vikum.

Á þessu tímabili hefur Guðmundur Ágúst fengið tæplega 23 þúsund Evrur í verðlaunafé eða sem nemur 3,6 milljónum kr.

Guðmundur Ágúst er sjöundi keppandinn sem slær draumahöggið á DP World Tour á þessu tímabili.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ