/

Deildu:

Auglýsing

Golfsamband Íslands leggst, að hluta til, eindregið gegn þeim breytingum sem lagðar eru til í fyrirliggjandi þingsályktunartillögu um seinkun klukkunnar og bjartari morgna. Þetta kemur fram í umsögn GSÍ sem send var til Velferðarnefndar Alþingis.

Í umsögn GSÍ kemur m.a. fram að fyrirhuguð breyting muni hafa gríðarleg áhrif á nýtingu íþróttamannvirkja yfir sumarmánuðina og skerða möguleika fólks til að leika golf eða stunda aðrar íþróttir úti við. Þar er einnig bent á að breytingin muni fela í sér mikið tekjutap fyrir golfklúbba og skerða rekstrargrundvöll þeirra.

Umsögn GSÍ í heild sinni er hér fyrir neðan:

Til Velferðarnefndar Alþingis.

Umsögn Golfsambands Íslands um þingsályktunartillögu um seinkun klukkunnar og bjartari morgna.

Þingskjal 421 – 338. mál.

Golfsamband Íslands er í forsvari fyrir golfhreyfinguna á Íslandi. Golfhreyfingin samanstendur af 65 golflúbbum víðsvegar um landið og eru skráðir félagar í hreyfingunni tæplega 17.000 talsins. Það gerir Golfsamband Íslands að næst stærsta sérsambandi innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.

Golfsambandið leggst, að hluta til, eindregið gegn þeim breytingum sem lagðar eru til í fyrirliggjandi þingsályktunartillögu og vill golfsambandið koma eftirfarandi athugasemdum á framfæri við hina virðulegu nefnd.

Komi fyrirhuguð breyting til framkvæmda mun það hafa gríðarleg áhrif á nýtingu íþróttamannvirkja yfir sumarmánuðina og skerða möguleika fólks til að leika golf eða stunda aðrar íþróttir úti við. Þegar líða tekur á sumarið mun dagurinn styttast um eina klukkustund í kjölfar þess að sólin sest fyrr. Óhjákvæmilega mun þetta fela í sér mikið tekjutap fyrir golfklúbba vegna samdráttar í sölu vallargjalda. Í raun mætti tala um verulega skertan rekstrargrundvöll þeirra.

Á Íslandi er sumarið stutt og sérstaða þess er langur sólargangur. Kylfingar á Íslandi hafa nýtt sér þessa sérstöðu með þeim hætti að á þeim golfvöllum sem eru hvað vinsælastir, er heildarfjöldi spilaðra hringja yfir sumartímann sá sami og á ársgrundvelli á golfvöllum sunnar í Evrópu, sem opnir eru allan ársins hring. Hér á landi eru golfvelli aftur á móti opnir að hámarki fimm til sex mánuði á ári. Það má því segja að áhugafólk um golf nýti sumartímann mjög vel, með því að leika golf langt fram eftir kvöldi. Þessi sérstaða er örugglega ein af þeim ástæðum sem skýra miklar vinsældir golfíþróttarinnar á Íslandi og er fjöldi kylfinga miðað við höfðatölu sá mesti sem þekkist í heiminum.

Gríðarleg fjölgun hefur átt sér stað innan golfhreyfingarinnar undanfarinn áratug og af þeim sökum hefur golfvöllum fjölgað jafnt og þétt um land allt. Óhætt er að fullyrða að þessir golfvellir eru nýttir frá morgni til kvölds, alla daga vikunnar. Algengt er að golfvellir séu fullnýttir fram eftir miðnætti yfir hásumarið.

Ef seinkun klukkunnar yrði að veruleika með þeim hætti sem lagt er til í þingsályktunartillögunni, skerðast verulega möguleikar kylfinga og annars íþróttafólks til að stunda íþróttir síðdegis og fram á kvöld og mun nýting íþróttamannvikja því dragast saman. Sá tími sem tapst á kvöldin vinnst ekki upp á morgnana, þar sem ólíklegt verður að teljast að íþróttaástundun hefjist klukkustund fyrr á morgnana. Þá er veðurfar með þeim hætti hér á landi að síðdegis lægir og því oft bestu skilyrðin til að njóta útveru síðdegis og fram eftir kvöldi. Þá er ljóst að íþróttakappleikir, sem fara fram á kvöldin, yrðu að styðjast við flóðlýsingu með tilheyrandi kostnaði.

Mikilvægi ferðaþjónustunnar fyrir Ísland þarf ekki að tíunda, en fjöldi erlendra kylfinga heimsækir nú Ísland á hverju sumri og fyrirséð að þeim eigi einungis eftir að fjölga. Fyrir þessa kylfinga er sérstaða Íslands, kvöldbirtan og miðnætursólin, mikilvægur þáttur í upplifun þeirra hér á landi.

Þessi sérstaða tapast að verulegu leyti ef klukkunni yrði seinkað. Íslenskir golfklúbbar og ýmsir ferðaþjónustuaðilar hafa undanfarin ár ráðist í töluverðar fjárfestingar í tengslum við kvöld- og miðnæturgolf á Íslandi. Hugmyndin að baki „miðnæturgolfi“ hefur því verið auglýst rækilega víðs vegar um heim. Ljóst er að möguleikar á miðnæturgolfi skerðast verulega með fyrirhugaðri breytingu þar sem ekki verður hægt að njóta kvöldsólarinnar jafnlengi þegar líða tekur á sumarið.

Víða um heim er greint á milli sumar- og vetrartíma og getur Golfsamband Íslands tekið undir þau rök að huga megi að seinkun klukkunnar yfir vetrartímann líkt og gert er í mörgum löndum. Slík breyting hefði ekki jafnmikil áhrif á íþróttaiðkun á Íslandi. Það er hins vegar mikið hagsmunamál fyrir golfhreyfinguna að engin breyting verði gerð á klukkunni yfir sumartímann og leggst sambandið því alfarið gegn slíkri breytingu. Þá verður ekki séð að þær röksemdir fyrir breytingunni, sem raktar eru í fyrirliggjandi þingsályktunartillögu, eigi að jafn miklu leyti við um sumartímann eins og vetrartímann. Má jafnvel segja að engin almenn þörf sé á því að gera breytingu á klukkunni yfir sumartímann.

Sé frekari upplýsinga óskað mun Golfsamband Ísland verða við slíkum óskum við fyrsta tækifæri.

Reykjavík, 17. mars 2015

Virðingarfyllst,
Haukur Örn Birgisson
Forseti Golfsambands Íslands

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ