/

Deildu:

Auglýsing

Fréttaskot frá dómaranefnd GSÍ þar sem fjallað er um breytingarnar á golfreglunum.


Tvær breytingar hafa orðið á reglunum varðandi kylfur sem skemmast á meðan á leik stendur:

  • (a) Ef kylfa þín skemmist á meðan á leik stendur máttu halda áfram að nota kylfuna það sem eftir lifir hringsins. Enginn greinarmunur er gerður á því hvort kylfan skemmist við eðlilegan leik eða t.d. í reiðikasti.
  • (b) Ef kylfa þín skemmist á meðan á leik stendur máttu að öllu jöfnu ekki skipta um kylfu fyrr en eftir hringinn. Þú mátt eingöngu skipta um kylfu ef kylfan skemmdist fyrir tilverknað einhvers utanaðkomandi, þ.e. annars en þín eða kylfubera þíns.

Ef kylfa skemmist máttu láta gera við kylfuna, þó þannig að ekki sé skipt um grip, skaft eða kylfuhaus.

Með þessum breytingum hafa reglur um skemmdar kylfur einfaldast til muna og kemur í veg fyrir slysalegar frávísanir sem áttu sér stað áður þegar leikmenn héldu leik áfram með kylfu sem taldist óleikhæf.

Sjá reglu 4.1

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ