Íslandsmót golfklúbba 2026 í 1. deild kvenna 50 ára og eldri fór fram á Hólmsvelli í Leiru dagana 20.-22. ágúst. Átta lið tóku þátt í mótinu.
Golfklúbbur Reykjavíkur varð Íslandsmeistari eftir 3-2 sigur gegn Nesklúbbnum í spennandi úrslitaleik.
Sveit GR vann tvo af þremur leikjum sínum í B-riðli og tryggði sér sæti í undanúrslitum. Þar hafði sveitin betur gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Keilis, 3.5-1.5.
Í úrslitaleiknum mætti GR sveit NK, sem sigraði GKG í undanúrslitum.
Nesklúbburinn vann fjórmenningsleik úrslitanna þegar Ágúst Dúa Jónsdóttir og Þyrí Valdimarsdóttir lögðu Signýju Mörtu Böðvarsdóttur og Ástu Óskarsdóttur. Írunn Ketilsdóttir svaraði fyrir GR með 6/4 sigri gegn Huldu Bjarnadóttur og Júlíana Guðmundsdóttir tryggði GR annað stig gegn Sigrúnu Eddu Jónsdóttur.
Elsa Nielsen vann Steinunni Sæmundsdóttur, 7/6, og jafnaði þar með viðureignina fyrir Nesklúbbinn. Sigríður Kristinsdóttir tryggði GR Íslandsmeistaratitilinn með 5/3 sigri gegn Guðrúnu Valdimarsdóttur.
Golfklúbburinn Keilir varð í þriðja sæti eftir 4.5-0.5 sigur gegn Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar.
Lokastaðan í 1. deild kvenna 50+
- Golfklúbbur Reykjavíkur
- Nesklúbburinn
- Golfklúbburinn Keilir
- Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
- Golfklúbburinn Oddur
- Golfklúbbur Mosfellsbæjar
- Golfklúbburinn Leynir
- Golfklúbbur Vestmannaeyja
*Golfklúbbur Vestmannaeyja fellur í 2. deild.
Smelltu hér fyrir stöðu, leiki og öll úrslit úr 1. deild kvenna 50+.





