Halldór Jóhannsson úr Golfklúbbnum Keili er Íslandsmeistari unglinga í höggleik í flokki 15-16 ára pilta. Halldór lék hringina þrjá á samtals 223 höggum, sjö höggum yfir pari Hvaleyrarvallar, og sigraði með eins höggs mun eftir spennandi lokahring.
Íslandsmót unglinga í höggleik fór fram dagana 20.-22. ágúst og var leikið á tveimur völlum. Kylfingar á aldrinum 15-18 ára léku á Hvaleyrarvelli hjá Golfklúbbnum Keili en kylfingar 14 ára og yngri á Þorláksvelli hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar.
Keppt var í átta aldursflokkum og leikinn höggleikur án forgjafar. Á Hvaleyrarvelli voru leiknar 54 holur, 18 holur á hverjum keppnisdegi. Að loknum 36 holum var keppendum fækkað og 70% þeirra kylfinga sem voru með besta skorið í hverjum flokki héldu áfram á lokahringinn.
Halldór lék fyrsta hringinn á 71 höggi, einu höggi undir pari. Hann fékk þrjá fugla og var í þriðja sæti, þremur höggum á eftir Skarphéðni Agli Þórissyni úr Nesklúbbnum.
Halldór fylgdi því eftir með 73 höggum á öðrum hring. Halldór var með tveggja högga forystu fyrir lokadaginn, en Barri Björgvinsson og Skarphéðinn Egill voru næstir á tveimur höggum yfir pari.
Hjalti Kristján Hjaltason úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar hóf daginn sjö höggum á eftir Halldóri en sótti hratt að honum.
Þegar þrjár holur voru eftir hafði Hjalti unnið upp sex af höggunum sjö og var aðeins einu höggi á eftir. Báðir kylfingarnir léku síðustu þrjár holurnar á pari og Halldór hélt því forystunni. Hann tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn með pari á 18. holu.
Hjalti Kristján lék lokahringinn á 73 höggum og varð annar á 224 höggum, átta yfir pari. Máni Freyr Vigfússon úr Golfklúbbnum Keili hafnaði í þriðja sæti á 227 höggum, ellefu yfir pari.
Smelltu hér til að sjá öll úrslit mótsins






