Auglýsing

Golfklúbburinn Leynir á Akranesi auglýsir laust starf íþróttastjóra GL.

Íþróttastjóri gegnir mikilvægu hlutverki í starfi klúbbsins og hefur umsjón með skipulagi og þjálfun kylfinga í klúbbnum. Golfklúbburinn Leynir er ört stækkandi klúbbur sem hefur stórbætt aðstöðu sína fyrir kylfinga og starfsfólk og býður upp á mörg góð tækifæri fyrir réttan aðila.

Starfssvið:

• Ábyrgð á skipulagi og framkvæmd þjálfunar barna-, unglinga og afrekskylfinga.
• Umsjón og stuðningur við börn, ungmenni og afrekskylfinga
GL á mótaröðum GSÍ.
• Ábyrgð á þjónustu við almenna kylfinga á sviði þjálfunar.
• Upplýsingagjöf og samstarf við stjórn og nefndir klúbbsins.

Menntunar- og hæfnikröfur:

• PGA golfkennari, PGA nemi eða annað sambærilegt nám.
• Reynsla af sambærilegu starfi er kostur.
• Leiðtogahæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
• Jákvæðni, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
• Geta til að tjá sig í ræðu og riti.

Umsókn skal fylgja ferilskrá umsækjanda.

Senda skal umsóknir á netfangið leynir@leynir.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir framkvæmdastjóri Leynis í síma 899 1839 og á netfanginu rakel@leynir.is

Umsóknarfrestur er til og með 20. september.

Stjórn GL

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ