Frá Litlueyrarvelli á Bíldudal.
Auglýsing

Stjórn Golfsambands Íslands tók fyrir umsókn Golfklúbbs Bíldudals um styrk úr styrktarsjóði GSÍ á stjórnarfundi sem fram fór í síðustu viku.

Styrktarsjóði Golfsambands Íslands er ætlað að styrkja íslenska golfklúbba við rekstur golfvalla sinna eða mannvirkja, sbr. 16. grein laga GSÍ.

Eftir umræður og teknu tilliti til stærðar sjóðsins sem stendur var niðurstaðan að styrkur að upphæð 300.000 kr var samþykktur af stjórn GSÍ til Golfklúbbs Bíldudals.

Töluvert tjón varð í golfskála klúbbsins nýverið. Talsvert af vatni flæddi inn í húsið vegna aðstæðna sem sköpuðust á svæðinu vegna asahláku á Litlueyrarvelli í Bíldudal.

Félagsmenn hafa unnið að því að lagfæra skemmdirnar og endurbæta húsnæðið á undanförnum vikum í sjálfboðavinnu.

Í reglugerð sjóðsins kemur fram að fyrst og fremst er horft til þess að styrkja golfklúbba sem þurfa að bregðast við óvæntum áföllum í rekstri golfvalla sinna eða annarra mannvirkja. Einnig er sjóðnum heimilt að styrkja golfklúbba við að koma sér upp lágmarksbúnaði við rekstur golfvalla.

Gert er ráð fyrir því að umsækjendur leggi sjálfir fram mótframlag í viðkomandi verkefni gegn þeim styrk sem samþykktur verður. Skilyrði fyrir greiðslu er að greinargerð sé skilað til GSÍ þar sem framvindu verkefnisins er skilmerkilega lýst.

Myndasyrpa frá Litlueyrarvelli – myndir/seth@golf.is

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ