Gísli Sveinbergsson
Auglýsing

Fjölmargir íslenskir kylfingar hafa á undanförnum vikum keppt á háskólamótum í golfi víðsvegar um Bandaríkin. GísliSveinbergsson úr Keil og Bjarki Pétursson úr GB voru báðir í sigurliði Kent State á móti sem fram fór í Cleveland 5.-6. okt. s.l. Sigur Kent í liðakeppninni var gríðarlega öruggur en sveitin lék á -17 samtals og var 20 höggum betri en næsta sveit.

Gísli lék hringina þrjá á -1 samtals, (73-73-69) 215 högg, og deildi hann 7. sætinu á þessu móti en sigurvegarinn var á -8 samtals.  Bjarki endaði í 32. sæti á +7 samtals, 223 höggum (75-71-77).

Gísli Sveinbergsson: 

Lokastaðan:

Haraldur Franklín Magnús úr GR endaði í fjórða sæti á móti sem fram fór í Mexíkó dagana 4.-6. okt. s.l. Haraldur leikur fyrir Louisiana háskólann og endaði hann á -4 samtals (74-67- 71) eða 212 höggum. Sigurvegarinn var á -9 samtals. Ragnar Garðarssonúr GKG er í sama skólaliði og Haraldur Franklín. Ragnar bætti sig verulega á lokahringnum og endaði í 18. sæti á +4 samtals eftir að hafa leikið á -3 á lokahringnum, (75-76-69), 220 högg. Louisiana endaði í fjórða sæti í liðakeppninni og voru Haraldur og Ragnar með tvö bestu skorin í liðinu.

Lokastaðan:

Haraldur Franklín Magnús: 


Rúnar Arnórsson úr Keili lék með  Minnesota State skólanum á McDonalds mótinu sem fram fór í Connecticut. Rúnar endaði í 54. sæti á +15 samtals (77-78), 155 högg en skólalið hans endaði í þriðja sæti af alls fimmtán liðum sem tóku þátt.

Rúnar Arnórsson: 

Lokastaðan:

Ari Magnússon GKG og Theodór Emil Karlsson GM hafa leikið á tveimur mótum með Arkansas Monticello liðinu. Á fyrra mótinu sem fram fór um miðjan september endaði Theodór í 18. sæti á 221 höggum (72-73-76) og Ari lék á (79-81-73). Liðið endaði í fimmta sæti á þessu móti. Á síðara mótinu sem fram fór í lok september endaði UAM í þriðja sæti.

Theodór endaði í fimmta sæti á 147 höggum (76-71) en Ari lék á 157 högugm og endaði í 34. sæti (82-75).


Guðrún
Brá Björgvinsdóttir úr Keili lék með Fresno State skólaliðinu á Rose City mótinu sem fram fór í lok september. Guðrún bætti sig verulega þegar á leið mótið en hún endaði í 16. sæti á 222 höggum (80-71-71). Fresno endaði í þriðja sæti af alls 15 liðum.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir: 


Lokastaðan:

 

Sunna Víðisdóttir, GR og Gunnhildur Kristjánsdóttir, GKG léku með Elon liðinu á Lady Pirate mótinu sem fram fór í lok september. Sunna endaði í 18. sæti á 231 höggi (76-77-78), Gunnhildur endaði í 62. sæti á +32, 248 högg, (82-86-80). Elon endaði í þriðja sæti af alls 17 liðum sem tóku þátt.

Lokastaðan:

Sunna Víðisdóttir: 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ