Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Auglýsing

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR lék vel í dag á öðrum keppnisdeginum á Tipsport Golf Masters, fer fram á Park Pilsen vellinum í Tékklandi. Ólafía, sem er með keppnisrétt á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu, fór upp upp um fimm sæti í dag og er í 23. sæti fyrir lokahringinn.

Ólafía er í 23. sæti og er átta höggum á eftir efsta kylfingi mótsins.

Þetta er annað mótið á ferlinum hjá Ólafíu Þórunni á Ladies European Tour. Hún endaði í 106. sæti á +12 á fyrsta mótinu sem fram fór í Marokkó.

Hægt er að fylgjast með gangi mála hjá Ólafíu Þórunni með því að smella hér:

Næsta mót á Ladies European Tour fer fram í Aberdeen í Skotlandi dagana 22.-24. júlí og er Ólafía í 24. sæti á biðlista fyrir það mót.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ