Frá vinstri: Sigurður Arnar, Ragnar Már og Aron Snær. Mynd/GKG
Auglýsing

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar tekur þátt á Evrópumóti golfklúbba í karlaflokki sem fram fer í Frakklandi 23.-25. október.

GKG tryggði sér keppnisrétt á mótinu með því að sigra á Íslandsmóti golfklúbba sem fram fór á Leirdalsvelli og Urriðavelli s.l. sumar.

Keppt er á Golf du Medoc keppnisvellinum sem er ekki langt frá borginni Bordeux.

Bræðurnir Sigurður Arnar Garðarsson og Ragnar Már Garðarsson keppa fyrir GKG ásamt Aroni Snæ Júlíussyni.

Þetta er í annað sinn sem þeir félagar keppa fyrir GKG á þessum velli á EM golfklúbba en mótið fór fram á þessum velli fyrir tveimur árum.

Alls eru 25 klúbbar sem taka þátt á EM golfklúbba.

Nánari upplýsingar og skor er að finna hér:


Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ